Kjarasamninganefnd - 1
- Kl. 10:00 - 11:37
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Greiðslur fyrir akstur í þágu vinnuveitanda
Málsnúmer 2018010334Umfjöllun um endurskoðun á reglum Akureyrarbæjar um greiðslur fyrir akstur í þágu vinnuveitanda vegna innleiðingar á rafrænni skráningu á akstri starfsmanna.
Kjarasamninganefnd samþykkir tillögu að endurskoðuðum reglum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
Yfirvinna starfsmanna Akureyrarbæjar árið 2017
Málsnúmer 2018010333Umfjöllun um yfirvinnu hjá Akureyrarbæ árið 2017.
Kjarasamninganefnd leggur til að gögn um yfirvinnu verði kynnt á fundum fagráða.
Persónuálag vegna starfsþróunarnámskeiða
Málsnúmer 2018010266Umfjöllun um mat á starfsþróunarnámskeiðum til persónuálags með gildistíma frá 1. janúar 2018 í kjarasamningum aðildafélaga innan BSRB og ASÍ.
Afgreiðslu frestað.
Kjölur - kynningarefni
Málsnúmer 2017120099Efni til kynningar á Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu lagt fram til kynningar.
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar - vinna samhliða töku lífeyris
Málsnúmer 2014080060Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs 23. nóvember 2017:
Farið var yfir málið.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar málinu til kjarasamninganefndar og felur henni að móta tillögur að reglum vegna töku lífeyris samhliða starfi.Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að veitt verði heimild til töku lífeyris hjá Lífeyrisjóði starfsmanna Akureyrarbæjar samhliða starfi, í samræmi við tillögu að reglum þar um.