Íþróttaráð - 196
- Kl. 12:30 - 15:30
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 196
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Arnar Þór Jóhannesson
- Birna Baldursdóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Alfa Dröfn Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2017 - íþróttaráð
Málsnúmer 2016050293Unnið að fjárhagsáætlun íþróttaráðs fyrir starfsárið 2017.
Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar mætti á fundinn undir þessum lið.Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að fjárhagsáætlun íþróttamála og gjaldskrá fyrir íþróttamannvirki fyrir starfsárið 2017 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2018-2020 og vísar drögunum til bæjarráðs.
Íþróttaráð óskar eftir viðauka í fjárhagsáætlunarramma ráðsins til að geta endurnýjað snjótroðara í Hlíðarfjalli árið 2017. Íþróttaráð óskar eftir kr. 60.000.000 framlagi bæjarráðs til að geta endurnýjað búnaðinn.
Íþróttaráð óskar eftir því við stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar að á árinu 2017 verði farið í endurbætur á aðstöðu í íþróttahúsi Laugargötu og að aðstöðunni verði breytt til að mæta nýjum þörfum, að íþróttagólfinu í íþróttamiðstöð Glérárskóla verði endurnýjað, að anddyri að íþróttamiðstöð Giljaskóla verði stækkað, að lokið verði við uppsetningu á nýrri rennibraut við Sundlaug Akureyrar og að sett verði upp tjald til að tvískipta íþróttasal íþróttahúss Lundarskóla.
Íþróttaráð samþykkir endurskoðað framkvæmdayfirlit íþróttamála 2016-2021 og vísar því til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð samþykkir tillögur að búnaðarkaupum fyrir árið 2017 í íþróttamannvirki bæjarins og vísar tillögunum til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.
Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að koma á framfæri þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir V-lista vék af fundi kl. 14:30.
Birna Baldursdóttir L-lista vék af fundi kl. 14:43.