Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 466
- Kl. 13:00 - 14:15
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 466
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Stekkjartún 2 - umsókn um leyfi fyrir breytingum á hurð
Málsnúmer 2013100193Erindi dagsett 17. október 2013 þar sem Sigurgeir Arngrímsson sækir um breytingar á húsi nr. 2 við Stekkjartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Súluvegur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir áfyllingarstöð
Málsnúmer 2013100078Erindi dagsett 2. október 2013 þar sem Ágúst Torfi Hauksson f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir metan áfyllingarstöð á lóð nr. 2 við Súluveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svein Valdimarsson.\nInnkomnar teikningar 18. október 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi ber kostnað af færslu lagna, sem kvaðir eru um á lóðinni, ef þörf verður á.

Borgargil 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013070021Erindi dagsett 14. október 2013 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Borgargili 1. Meðfylgjandi eru brunahönnun og teikningar eftir Loga Má Einarsson.\nInnkomnar teikningar 17. október 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Tjarnartún 31 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2011110026Erindi dagsett 22. október 2013 þar sem Gunnar Þórarinsson sækir um breytingar á húsi nr. 31 við Tjarnartún. Meðfylgjandi er teikning eftir Svein Valdimarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.