Stjórn Akureyrarstofu - 105
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 105
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Hlín Bolladóttir
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Akureyrarstofa - rekstraryfirlit 2011
Málsnúmer 2011040139Lagt fram yfirlit um stöðu rekstrar á málaflokkum Akureyrarstofu eftir 8 mánuði.

Stjórnin þakkar framkvæmdastjóra kynninguna.

Fjárhagsáætlun 2012 - Akureyrarstofa
Málsnúmer 2011080087Ákveðinn hefur verið rammi málaflokka stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2012. Kynntar voru forsendur hans og staðan á fjárhagsáætlunarvinnunni hjá stjórnendum. Vinnu áfram haldið á næsta fundi.

Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að við fjárhagsáætlunargerðina verði tekjur og kostnaðarliðir brotnir niður á hvern mánuð svo betur megi fylgjast með gangi mála í rekstrinum.

MATUR-INN 2011 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2011090113Ódags. erindi frá Jóhanni Ólafi Halldórssyni f.h. sýningarinnar MATUR-INN 2011 þar sem óskað er eftir því að stjórn Akureyrarstofu styrki sýninguna vegna húsaleigu í Íþróttahöllinni, eða um kr. 460 þús.

Sýningin MATUR-INN endurspeglar norðlenska matarmenningu í víðum skilningi og telur stjórn Akureyrarstofu mikilvægt að sem flestir hafi tækifæri á að kynna sér hana. Í ljósi þess að ekki verður tekinn aðgangseyrir inn á sýninguna samþykkir stjórnin að styrkja verkefnið um kr. 200.000.