Fræðsluráð - 6
- Kl. 13:30 - 15:55
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Baldvin Valdemarsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Naustaskóli 6. áfangi - lóð
Málsnúmer 2017020140Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs kynnti tillögur um framkvæmdir á Naustaskólalóð.
Fræðsluráð þakkar Guðríði fyrir greinargóða kynningu.
Hjallastefnan ehf - samningur 2010-2015
Málsnúmer 2010090049Endurnýjun samnings við Hjallastefnuna ehf vegna reksturs á Hólmasól.
Framlengdur samningur við Hjallastefnuna mun gilda til næstu fimm ára frá undirritun. Fræðsluráð samþykkir drög að samningnum og felur fræðslusviði að ganga frá honum fyrir hönd Akureyrarbæjar.
Dagforeldrar
Málsnúmer 2017030168Jóhanna María Agnarsdóttir mætti til fundar kl. 14:20, undir 3. lið. <br />
Erindi frá dagforeldrum dagsett 13. mars 2017 er varðar breytingu á niðurgreiðslu á daggæslugjöldum.
Í dag er fyrirkomulag með þeim hætti að niðurgreiðslur Akureyrarbæjar ná til sjö tíma vistunar.
Í erindinu er óskað eftir því að niðurgreiðslur dreifist jafnt á átta tíma.Fræðsluráð felur fræðslusviði að kanna viðhorf foreldra til breytingar á dreifingu niðurgreiðslu á áttunda tíma til dagforeldra.
Stjórnsýslubreytingar
Málsnúmer 2017030171Kynntar voru tillögur kjarasamninganefndar um breytingar á skipuriti fræðslusviðs.
Fræðsluráð samþykkir framlagða tillögu fyrir sitt leyti og vísar kostnaðarauka vegna hennar til bæjarráðs.
Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri vék af fundi undir 4. lið.
Kennslustundaúthlutun til grunnskóla
Málsnúmer 2017030172Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri fór yfir hugleiðingar um úthlutun kennslustunda til grunnskóla haustið 2017.
Lagt fram til kynningar.
Dagforeldrar - tillaga að gjaldskrá frá 1. júní 2017
Málsnúmer 2017030174Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri fór yfir tillögur að gjaldskrá hjá dagforeldrum frá 1. júní 2017.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá frá 1. júní 2017.
Viðaukar - reglur
Málsnúmer 2017020133Lagðar fram til kynningar reglur um gerð og meðferð viðauka við fjárhagsáætlun.