Bæjarráð - 3289
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3289
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hermann Jón Tómasson
- Ólafur Jónsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Sigurður Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Rekstur - staða mála - embættismenn
Málsnúmer 2011050032Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista mætti á fundinn kl. 09:28.
Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri, Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar og Gunnar Gíslason fræðslustjóri mættu á fundinn og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

Bæjarráð þakkar þeim Pétri Bolla, Katrínu Björgu og Gunnari fyrir yfirferðina.

Knattspyrnufélag Akureyrar - gervigrasvöllur
Málsnúmer 2011060093Tekið fyrir að nýju. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum þann 8. september sl. beiðni KA um að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að vinna við jarðvegsframkvæmdir hefjist í haust og völlurinn lagður gervigrasi vorið 2012.\nFulltrúar KA þau Hrefna G. Torfadóttir formaður og Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir málið.

Bæjarráð þakkar Hrefnu og Gunnari komuna á fundinn.

Bæjarráð samþykkir að taka upp viðræður um endurskoðun á uppbyggingarsamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar frá árinu 2007.

Bæjarráð tilnefnir Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista í viðræðuhópinn og óskar eftir tilnefningu 2ja fulltrúa íþróttaráðs. Með hópnum munu starfa bæjarstjóri og framkvæmdastjóri íþróttadeildar.

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2011
Málsnúmer 2011020014Lögð fram til kynningar 789. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 9. september 2011.
Veiðifélag Fnjóskár - fundur vegna gerðar nýrrar arðskrár
Málsnúmer 2011090076Erindi móttekið 16. september 2011 frá stjórn Veiðifélags Fnjóskár, þar sem boðað er til fundar í félaginu föstudaginn 30. september 2011 kl. 20:00 að Skógum í Fnjóskadal, vegna gerðar nýrrar arðskrár fyrir Fnjóská.
Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012
Málsnúmer 2011070038Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.