Velferðarráð - 1278
- Kl. 14:00 - 15:40
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1278
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristbjörg Björnsdóttirfundarritari
Fjárhagsaðstoð 2018
Málsnúmer 2018040005Lagt fram til kynningar yfirlit vegna veittrar fjárhagsaðstoðar fyrstu fjóra mánuði ársins.
Listir og menning sem meðferð - styrkbeiðni
Málsnúmer 2018040338Lögð fram styrkbeiðni dagsett 30. apríl 2018 frá Halldóru Arnardóttur að upphæð kr. 300.000 til verkefnisins "Listir og menning sem meðferð" samstarfsverkefnis umsækjanda, Listasafnsins á Akureyri og öldrunarlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Um er að ræða skipulagðar heimsóknir fyrir einstaklinga með alzheimer og aðstandendur þeirra á listasafnið.
Afgreiðslu málsins er frestað til næsta fundar velferðarráðs þann 6. júní.
Forvarnaverkefni fyrir unglinga vegna þunglyndis og kvíða - styrkbeiðni
Málsnúmer 2018050127Lögð fram styrkbeiðni dagsett 25. apríl 2018 frá Sólveigu Hlín Kristjánsdóttur að upphæð kr. 500.000 til verkefnisins "Þinn besti vinur - Hugræn atferlismeðferð fyrir unglinga og ungt fólk." Um er að ræða gerð stuttra myndbanda um þunglyndi og kvíða sem nýtast sem almennt fræðsluefni en einnig í sérhæfðari meðferð við kvíða og þunglyndi.
Velferðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 350.000.
Golfsamtök fatlaðra á Íslandi (GSFÍ) - styrkbeiðni
Málsnúmer 2018050126Lögð fram styrkbeiðni dagsett 2. maí 2018 frá Frans Páli Sigurðssyni f.h. GSFÍ að upphæð kr. 150.000 til að efla þátttöku fatlaðra á Akureyri í golfíþróttinni. Unnið verður með Heiðari Davíð Bragasyni golfkennara og Golfklúbbi Akureyrar að verkefninu.
Velferðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 150.000.
Átak, félag fólks með þroskahömlun - styrkbeiðni
Málsnúmer 2018050125Lögð fram styrkbeiðni dagsett 4. maí 2018 frá Hrafnhildi Jóhannesdóttur f.h. Átaks, félags fólks með þroskahömlun að upphæð kr. 6.100.000 til að stofna deild Átaks á Norðurlandi og stofna notendaráð fatlaðs fólks með þroskahömlun. Sótt er um lægri styrk ef ekki er hægt að verða við ofangreindri umsókn.
Velferðarráð fagnar fyrirhugaðri stofnun félagsins á Akureyri og samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 200.000 til að halda stofnfundinn.
Ársskýrsla búsetusviðs 2017
Málsnúmer 2018030013Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs kynnti ársskýrslu búsetusviðs 2017.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.Ársskýrsla málefna fatlaðra í Eyjafirði
Málsnúmer 2018050093Ársskýrslur þjónustusvæðis Eyjafjarðar í málefnum fatlaðs fólks 2016 og 2017 lagðar fram til kynningar.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.