Stjórn Akureyrarstofu - 125
- Kl. 16:00 - 18:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 125
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Helgi Vilberg Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Sigfús Arnar Karlssonáheyrnarfulltrúi
- Unnsteinn Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Vaðlaheiðargöng - framhald framkvæmda
Málsnúmer 2011110045Alþingi samþykkti nú síðdegis efnisgreinar frumvarps um fjármögnun Vaðlaheiðarganga. Alls sagði 31 þingmaður já, 18 sögðu nei og 6 greiddu ekki atkvæði um fyrstu grein frumvarpsins. Annarri umferð málsins er þar með lokið.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu fagnar þessari niðurstöðu og hvetur Alþingi til að flýta endanlegri afgreiðslu málsins, svo ljúka megi undirbúningi og hefja framkvæmdir hið fyrsta.</DIV>
Verkefnisstjóri atvinnumála - auglýsing 2012
Málsnúmer 2012030132Á síðasta fundi stjórnar var framkvæmdastjóra og tveimur fulltrúum úr stjórn falið að klára ráðninguna í samræmi við þá vinnu og umræðu sem fram hafi farið. Ráðningarferlinu er nú lokið og hefur Hreinn Þór Hauksson verið ráðinn í starfið.
Stjórn Akureyrarstofu staðfestir ráðninguna og býður Hrein Þór Hauksson velkominn til starfa.Sjónlistamiðstöðin á Akureyri - skipulag og þróun
Málsnúmer 2012040129Tekið til umræðu, að ósk fulltrúa V-lista í stjórn Akureyrarstofu, mál það sem upp kom á sýningu Sjónlistamiðstöðvarinnar á dögunum. Í merkingu eins verksins á sýningunni voru fólgin skilaboð frá forstöðumanni Sjónlistamiðstöðvarinnar til formanns Myndlistarfélagsins á Akureyri og gerði formaðurinn athugasemd við það í fjölmiðlum.
Hildur Friðriksdóttir fulltrúi V-lista í stjórn Akureyrarstofu óskar bókað:Í tilefni af gjörningi Hannesar Sigurðssonar forstöðumanns Sjónlistamiðstöðvar á sýningunni Syntagma sem nú stendur yfir, þá vill fulltrúi VG í stjórn Akureyrarstofu mótmæla því harðlega að opinbert fjármagn og vald sé nýtt í persónulegum tilgangi til að koma höggi á formann Myndlistarfélagsins. Auk þess telur fulltrúi VG að heppilegra hefði verið að málið hefði verið tekið fyrir í stjórn Akureyrarstofu áður en framkvæmdastjóri gaf yfirlýsingar um málsmeðferð í fjölmiðlum.Samningur um stuðning Akureyrarbæjar við rekstur Menningarfélagsins Hofs árin 2012-2013
Málsnúmer 2011030188Lagðar fram til kynningar upplýsingar um rekstrarstöðu og starfsemi Menningarfélagsins eftir fyrstu 6 mánuði starfsársins 2011-2012.
<DIV> </DIV>
Fjölskyldu- og skeljahátíð í Hrísey 2012 - styrkbeiðni
Málsnúmer 2012050130Erindi dags. 15. maí 2012 frá Lindu Maríu Ásgeirsdóttur f.h. undirbúningsnefndar Fjölskylduhátíðar í Hrísey þar sem óskað er eftir styrk til hátíðarhaldanna.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000 til verkefnisins.Starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2011-2014
Málsnúmer 2011010071Farið yfir starfsáætlun stjórnar Akureyrarstofu og rætt áframhaldið við endurskoðun hennar.
Stjórnin samþykkir að skipar Höllu Björk Reynisdóttur og Unnstein Jónsson í starfshóp sem vinni að endurskoðun áætlunarinnar ásamt framkvæmdastjóra, fyrir næsta fund.