Íþróttaráð - 200
- Kl. 14:00 - 16:12
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 200
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Árni Óðinsson
- Birna Baldursdóttir
- Þórunn Sif Harðardóttir
- Jónas Björgvin Sigurbergsson
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonframkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar ritaði fundargerð
Bandalag íslenskra skáta - 15th World Scout Moot 26.- 29. júlí 2017
Málsnúmer 2016100036Samfélags- og mannréttindaráð gerði eftirfarandi bókun á fundi sínum 18. október 2016:
Samfélags- og mannréttindaráð fagnar því að heimsleikar skáta fari að hluta til fram á Akureyri sumarið 2017.
Beiðni um aðgengi að sundlaug á Akureyri er vísað til íþróttaráðs en öðrum liðum erindsins er vísað til bæjarráðs þar sem umbeðin styrkfjárhæð rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar ráðsins.Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk um frían aðgang að Sundlaug Akureyrar, en vísar á forstöðumann Sundlaugar Akureyrar vegna tilboða fyrir hópa.
Umhverfis- og samgöngustefna
Málsnúmer 2015010196Óskað eftir umsögn ráðsins á drögum að umhverfis- og samgöngustefnu Akureyrarbæjar.
Framkvæmdastjóra falið að koma ábendingum ráðsins á framfæri.
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd samþykkti á fundi 5. október 2016 að senda tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 til umsagnar innan bæjarkerfisins, þ.e. deilda, nefnda og ráða.
Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri mætti til fundarins undir þessum lið.Íþróttaráð þakkar skipulagsstjóra fyrir greinargóða kynningu.
Íþróttabandalag Akureyrar - samskipta- og samstarfssamningur Akureyrarbæjar og ÍBA
Málsnúmer 2015010126Farið yfir vinnu við endurnýjun rekstrarsamnings við ÍBA.
Lagt fram til kynningar.
Heilsueflandi samfélag
Málsnúmer 2015030173Tekin til umræðu skipun í stýrihóp verkefnisins.
Framkvæmdastjóra falið að vinna máið áfram með tilliti til reglna og viðmiða um stýrihópa.
Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur - úthýsing
Málsnúmer 2014050114Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála varðandi úthýsingu Hlíðarfjalls. Unnið er að málinu ásamt Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar þar sem meðal annars er unnið að gagnaöflun og samstarfi við ráðgjafa.
Vetraríþróttamiðstöð Ísland (VMÍ)
Málsnúmer 2014080131Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir samstarfi við VMÍ.
Framkvæmdastjóri, formaður og fulltrúi bæjarráðs áttu fund með stjórn VMÍ 27. október sl. þar sem meðal annars var farið yfir fyrirhugaða úthýsingu Hlíðarfjalls og hugmyndir um nýja lyftu. Farið var yfir verkefni og rætt um endurnýjun samnings milli Akureyrarbæjar og ríkis um uppbyggingu á vegum VMÍ.