Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 270
- Kl. 08:15 - 10:05
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 270
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019 - umsögn FA
Málsnúmer 2015110034Endurskoðuð jafnréttisáætlun sem gildir til ársins 2019 lögð fram til umsagnar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra að koma umsögn stjórnarinnar á framfæri.
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Lagt fram minnisblað dagsett 10. nóvember 2015 frá Fasteignum Akureyrarbæjar með svörum vegna bókunar Njáls Trausta Friðbertssonar D-lista við 2. dagskrárlið 269. fundar stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar. Þar kemur fram að áætlað er að húsaleiga Listasafnsins muni hækka um 33 milljónir króna á ári miðað við 400 milljóna króna fjárfestingu.
Fjárhagsáætlun 2016 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015090007Lögð fram fjárfestingaráætlun 2016-2019 sem samþykkt var í bæjarráði ásamt minnisblaði dagsettu 12. nóvember 2015 um stöðuna á viðhaldi FA árið 2015.
Meirihluti stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir framlagða fjárfestingaráætlun fyrir árin 2016-2019.
Njáll Trausti Friðbertsson D-lista sat hjá við afgreiðsluna.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar óskar eftir viðbótarfjármagni vegna aukinna ófyrirséðra verkefna í viðhaldi 2015 að fjárhæð 32 milljónir króna frá bæjarráði.Ingibjörg Ólöf Ísaksen B-lista vék af fundi kl. 09:40.