Samfélags- og mannréttindaráð - 116
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 116
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Regína Helgadóttir
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- María Hólmfríður Marinósdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri - rannsóknir
Málsnúmer 2012110007Andrea Sigrún Hjálmsdóttir félagsfræðingur við Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri kynnti rannsóknir um vímuefnaneyslu unglinga og heilsu og lífskjör skólanema. \nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista kom til fundar kl. 17:20.
Forvarnamál - 2012-2013
Málsnúmer 2012040062Lagt fram til kynningar yfirlit yfir forvarnafræðslu sem boðið verður upp á í grunnskólum bæjarins í vetur. \nGréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

Jafnréttisstofa - beiðni um afhendingu á skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála
Málsnúmer 2012070136Lögð fram til kynningar skýrsla um stöðu verkefna í Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar. Skýrslan hefur verið send til Jafnréttisstofu.

Kynjuð fjárhagsáætlanagerð
Málsnúmer 2011030090Lögð fram tillaga að tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhagsáætlanagerð sem snýst um úttekt á handverksmiðstöðinni Punktinum.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir framlagða tillögu.

Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar
Málsnúmer 2012090258Áframhaldandi umræður um veitingu viðurkenninga til þeirra sem skara fram úr í æskulýðs- og tómstundastarfi.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2012
Málsnúmer 2012090256Dagana 25. nóvember til 10. desember nk. mun samfélags- og mannréttindaráð ásamt fleirum taka þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift átaksins er "heimilisfriður - heimsfriður". Drög að dagskrá kynnt.

Þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti - dagur gegn einelti 8. nóvember
Málsnúmer 2011100100Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 1. nóvember 2012 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á degi gegn einelti 8. nóvember og fólk hvatt til að undirrita þjóðarsáttmála á heimasíðunni www.gegneinelti.is.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur bæjarbúa til að undirrita þjóðarsáttmálann.