Fræðsluráð - 57
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 57
Nefndarmenn
- Þorlákur Axel Jónssonvaraformaður
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Þórhallur Harðarson
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirvaramaður foreldra leikskólabarna
- Ísabella Sól Ingvarsdóttirvaramaður fulltrúa ungmennaráðs
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Jóhanna María Agnarsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Kolbrún Sigurgeirsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Marthen Elvar Veigarsson Olsenvaramaður fulltrúa leikskólakennara
- Snjólaug Jónína Brjánsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Erna Rós Ingvarsdóttirfundarritari
Skýrsla MSHA um sérúrræði í grunnskólum Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021091604Að beiðni fræðslusviðs Akureyrarbæjar vann Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri (MSHA) skýrslu um sérúrræði í grunnskólum bæjarins. Skýrslan var lögð fram til kynningar. Gunnar Gíslason forstöðumaður MSHA og Rúnar Sigþórsson prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri komu á fundinn og gerðu grein fyrir skýrslunni.
Fræðsluráð tók efni skýrslunnar til umræðu og lýsir yfir ánægju sinni með hana og vinnu tengda henni.
Ísabella Sól Ingvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs kom til fundar kl. 14:00
Leikskólar - starfsáætlanir 2014-2022
Málsnúmer 2018040329Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla gerði grein fyrir starfsáætlunum leikskóla 2021-2022 fyrir Hólmasól og Hríseyjarskóla og lagði fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfesti samhljóða starfsáætlanir sem lagðar voru fram.
Staðfesting á skólasókn
Málsnúmer 2018100121Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs skv. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er „að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu."
Lögð var fram greinargerð um skólasókn barna á grunnskólaaldri á Akureyri 1. október 2021.Fræðsluráð staðfesti samhljóða framlagða greinargerð.
Fylgiskjöl
Kostnaðarauki vegna móttöku flóttamanna í skólum - Ósk um viðauka
Málsnúmer 2021090845Seinni umræða um ósk um viðauka vegna móttöku flóttamanna í leik- og grunnskólum.
Fræðsluráð samþykkir erindið samhljóða og vísar því til bæjarráðs.
Gjaldskrá fræðslusviðs 2022
Málsnúmer 2021090843Tillögur að gjaldskrám fræðslusviðs fyrir árið 2022 lagðar fram til umræðu og kynningar.
Jóhann Gunnarsson fulltrúi grunnskólabarna vék af fundi kl. 15:00.