Skipulagsráð - 382
- Kl. 08:15 - 09:42
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 382
Nefndarmenn
- Þórhallur Jónssonformaður
- Sindri S. Kristjánsson
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Ólöf Inga Andrésdóttir
- Arnfríður Kjartansdóttir
- Helgi Sveinbjörn Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pétur Ingi Haraldssonforstöðumaður skipulagsmála
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
- María Markúsdóttirfundarritari
Hyrnuland 1,3,5,7 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2022042921Erindi dagsett 29. apríl 2022 þar sem Halldór Jóhannsson f.h. Hálanda ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi fyrir 3. áfanga Hálanda. Fyrirhugað er að breyta lóðamörkum Hyrnulands 1, 3 og 5 til að koma fyrir nýrri lóð, Hyrnulandi 7. Meðfylgjandi er skýringaruppdráttur.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Huldulands 2 og 4.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Sjafnargata 1 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2022050652Erindi Baldurs Ólafs Svavarssonar dagsett 12. maí 2022 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 1 við Sjafnargötu. Fyrirhugað er að reisa húsnæði fyrir verslun á vesturhluta lóðar ásamt þjónustuhúsi. Einnig er óskað eftir afstöðu skipulagsráðs til breytinga á skipulagi á lóð nr. 2 við Austursíðu. Þær breytingar felast í byggingu tveggja þjónustuhúsa við norðvesturhluta lóðar.
Meðfylgjandi eru greinargerð og skýringaruppdráttur.Skipulagsráð frestar afgreiðslu og felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda um framhald málsins. Er útfærslu hringtorgs á Síðubraut vísað til umsagnar umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Fylgiskjöl
Týsnes 12 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2022050685Erindi Ingólfs Freys Guðmundssonar dagsett 13. maí 2022 þar sem sótt er um tilfærslu á byggingarreit á lóð nr. 12 við Týsnes. Tilfærslan er 5 m til norðurs.
Meðfylgjandi eru skýringarmyndir.Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhafa Týsness 10.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Þórunnarstræti 114 - umsókn um breytingu á nýtingarhlutfalli
Málsnúmer 2022050650Erindi Brynjólfs Árnasonar f.h. Libertas ehf. dagsett 12. maí 2022 þar sem óskað er eftir breytingu á nýtingarhlutfalli lóðar úr 0,6 í 0,62 þar sem kjallari var rangt skráður á upprunalegum teikningum.
Meðfylgjandi eru aðalteikningar.Að mati skipulagsráðs er um svo óverulegt frávik að ræða að ekki er talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Hafnarstræti 90 - umsókn um nýtingu gangstéttar
Málsnúmer 2022050575Erindi dagsett 11. maí 2022 þar sem Einar Hannesson leggur inn umsókn um leyfi til að hafa stóla og borð utandyra framan við veitingastað hans í húsi nr. 90 við Hafnarstræti.
Skipulagsráð samþykkir erindið með þeim skilmálum að farið verði eftir ákvæðum sem sett eru eru fram í Samþykkt Akureyrarbæjar um verklagsreglur vegna nýtingar gangstétta- og göturýmis í göngugötu og Ráðhústorgi.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Helgamagrastræti 9 - fyrirspurn varðandi breytingar
Málsnúmer 2022041863Lagt fram að nýju erindi dagsett 1. apríl 2022 þar sem Rebekka Kristín Garðarsdóttir leggur inn fyrirspurn varðandi breytingar á húsi nr. 9 við Helgamagrastræti. Fyrirhugað er að útbúa bílastæði á lóð, breyta gluggum hússins og byggja við húsið. Meðfylgjandi er greinargerð.
Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 20. apríl sl. og var afgreiðslu frestað þar til umsögn Minjasafnsins á Akureyri lægi fyrir. Sú umsögn liggur nú fyrir og er hún á þá leið að ekki er mælt með breytingum á gluggum og útihurð hússins. Ekki er hinsvegar gerð athugasemd við fyrirhugaða stækkun á viðbyggingu vestan við húsið svo framarlega sem hún spilli ekki yfirbragði hússins eða götumynd.Meirihluti skipulagsráðs hafnar umbeðnum breytingum á gluggum og útidyrahurð hússins í ljósi umsagnar Minjasafnsins á Akureyri.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.
Umsókn um úrtak fyrir bílastæði er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Ólöf Inga Andrésdóttir L-lista situr hjá við afgreiðslu málsins.Fylgiskjöl
Helgamagrastræti 9 - fyrirspurn varðandi bílgeymslu
Málsnúmer 2022050455Lagt fram erindi Rebekku Kristínar Garðarsdóttur dagsett 13. maí 2022 varðandi byggingu bílgeymslu norðan við hús nr. 9 við Helgamagrastræti.
Meðfylgjandi er skýringarmynd.Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið en frestar afgreiðslu þar til fyrir liggja drög að útliti fyrirhugaðrar viðbyggingar.
Helgamagrastræti 38 - fyrirspurn varðandi bílskýli
Málsnúmer 2022050315Erindi dagsett 6. maí 2022 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hörpu Steingrímsdóttur og Vignis Más Þormóðssonar leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu bílskýlis við hús nr. 38 við Helgamagrastræti. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Helgamagrastrætis 40.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Hlíðargata 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum og bílskýli
Málsnúmer 2022050316Erindi dagsett 6. maí 2022 þar sem Hallur Kristmundsson f.h. Lækjarsels ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 2 við Hlíðargötu. Fyrirhugað er að einangra og klæða húsið, fjarlægja skyggni yfir inngangi, bæta við bílskýli fyrir tvo bíla og steypa vegg á lóðamörkum við Oddeyrargötu 36. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hall Kristmundsson.
Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44. gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir húseigendum við Hlíðargötu 1, 3 og 4 og Oddeyrargötu 34 og 36.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.Fylgiskjöl
Nonnahagi 15 - beiðni um breytta eignaskráningu lóðar
Málsnúmer 2022050350Erindi dagsett 6. maí 2022 þar sem Jón Kristinn Valdimarsson og Birna Hadda Ómarsdóttir óska eftir að lóð þeirra nr. 15 við Nonnahaga verði einungis skráð á nafn Birnu Höddu Ómarsdóttur.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
Goðanes 3 - umsókn um lóð
Málsnúmer 2022050235Erindi dagsett 4. maí 2022 þar sem Gráskalli ehf. sækir um lóð nr. 3 við Goðanes. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka og greinargerð um byggingaráform.
Skipulagsráð samþykkir ekki úthlutun lóðarinnar með þeim skilmálum sem settir eru fram í umsókn.
Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.
Skipulagsfulltrúa er falið að ræða við umsækjanda um aðra kosti í sambandi við lóðaval.Fylgiskjöl
Hulduholt 27 - 2. auglýsing - allar umsóknir
Málsnúmer 2022050633Annarri umferð auglýsingar á lóðinni Hulduholti 27 lauk þann 11. maí sl.
Tólf umsóknir bárust, allar frá einstaklingum.
Fyrir skipulagsráði liggur að draga milli þeirra umsækjenda sem teljast gjaldgengir í samræmi við reglur Akureyrarbæjar um lóðaúthlutun.
Umsækjendum var boðið að vera viðstaddir útdrátt.
Stefán Þengilsson f.h. Sverris Bergssonar, Bjarni Sigurðsson, Atli Már Bjarnason, Andri Már Bjarnason, Sverrir Guðmundsson og Hannes Indriði Kristjánsson sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.Við útdrátt féll lóðin í hlut Sverris Bergssonar.
Stefnt er að því að lóðin verði byggingarhæf 20. maí 2022. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022010178Lögð fram til kynningar fundargerð 861. fundar, dagsett 28. apríl 2022, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 6 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022010178Lögð fram til kynningar fundargerð 862. fundar, dagsett 5. maí 2022, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 8 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022010178Lögð fram til kynningar fundargerð 863. fundar, dagsett 12. maí 2022, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 7 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.