Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 913
- Kl. 13:00 - 13:45
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 913
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Eyrún Halla Eyjólfsdóttirfundarritari
Hlíðarfjallsvegur 41 áhaldahús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023040621Erindi dagsett 18. apríl 2023 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir áhaldahaldahús á lóð nr. 41 við Hlíðarfjallsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Glerárgata 34 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023040673Erindi dagsett 19. apríl 2023 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd G34 fasteigna ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi við lóð nr. 34 við Glerárgötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hamravegur 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023040687Erindi dagsett 19. apríl 2023 þar sem Þórir Guðmundssons fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir lóð nr. 4 við Hamraveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Helgamagrastræti 45 - umsókn um bílastæði og/eða úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2023040741Erindi dagsett 23. apríl 2023 þar sem Hanna Karin Hermannsdóttir sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini á lóð nr. 45 við Helgamagrastræti. Meðfylgjandi er afstöðumynd og samþykki meðeigenda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.
Sjafnargata 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023030460Erindi dagsett 9. mars 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson fyrir hönd Sjafnargötu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði á lóð nr. 1A við Sjafnargötu. Innkomnar nýjar teikningar 26. apríl 2023.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.