Umhverfis- og mannvirkjaráð - 91
- Kl. 08:15 - 10:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 91
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Slökkviliðið - tímabundin fjölgun vegna Covid-19
Málsnúmer 2020030672Lagt fram minnisblað dagsett 10. desember 2020 varðandi hækkun launakostnaðar vegna Covid-19.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka að fjárhæð kr. 20 milljónir vegna aukins launakostnaðar á auka dagvöktum í tengslum við covid. Minnisblað þess efnis var lagt fram í maí 2020.
Stöðuskýrslur rekstrar UMSA
Málsnúmer 2020050097Lögð fram rekstrarskýrsla umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir fyrstu 11 mánuði ársins.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfisdeildar, Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri, Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar, Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni- og hönnunardeildar, Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild og Helena Rut Pétursdóttir verkefnastjóri á fjársýslusviði sátu fundinn undir þessum lið.Loftgæðamál og aðgerðaáætlun í Akureyrarbæ
Málsnúmer 2018110215Viðbragðsáætlun gegn loftmengun á Akureyri kynnt fyrir ráðinu.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfisdeildar og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur til að viðbragðsteymi embættismanna fundi reglulega.
Moldarlosunarsvæði að Jaðri
Málsnúmer 2018010445Lögð fram drög að samningi varðandi hluta rekstrar á moldarlosunarsvæði Akureyrarbæjar.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfisdeildar og Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram út frá umræðum á fundinum.
Ófyrirséð viðhald 2021-2022
Málsnúmer 2020100825Lagt fram minnisblað dagsett 10. desember 2020 varðandi útboð á ófyrirséðu viðhaldi.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við eftirfarandi verktaka í eftirtöldum flokkum samkvæmt framlögðu minnisblaði:
Blikksmíði - (3 tilboð bárust). Gengið til samninga við 2 verktaka í flokknum
1. Benni blikk ehf.
2. Blikk- og tækniþjónustan ehf.
Málun - (10 tilboð bárust). Gengið til samninga við 7 í flokknum
1. Málningarfélagið ehf.
2. Málningarmiðstöðin ehf.
3. Stefán Jónsson ehf.
4. Litblær ehf.
5. Betri fagmenn ehf.
6. Betra mál málningarþjónusta ehf.
7. MSM ehf.
Pípulögn - (6 tilboð bárust). Gengið til samninga við 6 í flokknum
1. AKH pípulagnir ehf.
2. Lagnalind ehf.
3. Bjarni Fannberg Jónasson ehf.
4. Áveitan ehf.
5. Miðstöð ehf.
6. Bútur ehf.
Raflögn - (8 tilboð bárust). Gengið til samninga við 6 í flokknum
1. Raftó ehf.
2. Rafmax ehf.
3. Ljósgjafinn ehf.
4. Íslenskir rafverktakar ehf.
5. Rafeyri ehf.
6. Eltech ehf.
Húsasmíði - (11 tilboð bárust). Gengið til samninga við 6 í flokknum
1. Eyjólfur Árnason
2. Jóhann Eysteinsson
3. B.Hreiðarsson ehf.
4. Spor 33 ehf.
5. Trésmiðja Kristjáns Jónass ehf.
6. ÁK smíði ehf.
Stálsmíði - (2 tilboð bárust). Gengið til samninga við 1 í flokknum
1. Vélsmiðja Steindórs ehf.Efniskaup UMSA 2021-2022
Málsnúmer 2020100826Lagt fram minnisblað dagsett 10. desember 2020 varðandi útboð á efniskaupum umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við eftirfarandi fyrirtæki í eftirtöldum flokkum:
Málningu og málningarefni: Slippfélagið
Pípulagnaefni: Tengi
Raflagnaefni: Engin tilboð
Neyðarljós: Nortek
Rafmagnstæki: Ormsson
Hellur: BM Vallá
Grófvara og annað byggingarefni: HúsasmiðjanReglubundið eftirlit með brunavörnum 2020-2022
Málsnúmer 2020100827Lagt fram minnisblað dagsett 1. desember 2020 varðandi útboð á reglubundnu eftirliti með brunavörnum Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Securitas.
Þórunnarstræti/Búðartröð
Málsnúmer 2020050106Lagt fram skilamat dagsett 13. október 2020 varðandi framkvæmdir við gatnamót Þórunnarstrætis og Búðartraðar og nágrennis.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri tækni- og hönnunardeildar sat fundinn undir þessum lið.Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg
Málsnúmer 2019110416Lagt fram minnisblað dagsett 7. desember 2020 varðandi útboð á byggingu brúar yfir Glerá í samstarfi við Landsnet og kostnaðarhlutdeild Akureyrarbæjar vegna framkvæmdanna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða kostnaðarhlutdeild að kr. 29 milljónir vegna útboðsins sem var 127% af kostnaðaráætlun.
Rósenborg - framkvæmdir vegna Lundarskóla
Málsnúmer 2020120301Stöðuskýrsla dagsett 7. desember 2020 varðandi framkvæmdir við Rósenborg vegna flutnings fjögurra bekkja þangað vegna endurbóta á tveimur álmum í Lundarskóla.
Naustahverfi VII - Hagar, gatnagerð og lagnir - stefna fyrir dóm vegna framkvæmdanna
Málsnúmer 2020120179Lögð fram matsskýrsla vegna málsins dagsett í nóvember 2020.