Umhverfis- og mannvirkjaráð - 134
- Kl. 08:15 - 11:45
- Umhverfismiðstöð
- Fundur nr. 134
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Gunnar Már Gunnarsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
- Anton Bjarni Bjarkasonáheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar - vinna við gerð stefnunnar
Málsnúmer 2020110192Lögð fram drög að umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar 2022-2030 ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2025.
Umhverfis- og mannvirkjasviði falið að vinna aðgerðaáætlunina áfram í samræmi við umræður á fundinum og stefnt að því að samþykkja tilbúna aðgerðaáætlun í vor.
Boginn - lýsing
Málsnúmer 2023020043Lagt fram minnisblað dagsett 3. mars 2023 varðandi endurnýjun á lýsingu í Boganum.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð leggur áherslu á að endurnýjun á lýsingu í Boganum fari inn á framkvæmdaáætlun fyrir árið 2024.
Reglubundið eftirlit með brunavörnum 2023-2025
Málsnúmer 2023030205Lagt fram minnisblað dagsett 3. mars 2023 varðandi niðurstöðu útboðs á eftirliti með brunaviðvörunarkerfum í stofnunum Akureyrarbæjar.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar öllum tilboðum í eftirliti með brunaviðvörunarkerfum í stofnunum Akureyrarbæjar.
Hverfahleðslustöðvar á Akureyri
Málsnúmer 2023020298Lagt fram minnisblað dagsett 6. mars 2023 varðandi á áform um uppsetningu hverfahleðslustöðva á Akureyri.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Sjávarhæð og flóð á Akureyri
Málsnúmer 2022091192Lagt fram minnisblað dagsett 16. febrúar 2023 varðandi sjávarflóð á Oddeyri 25. september 2022.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því að tekið verði saman minnisblað um aðgerðir og kostnað vegna varna gegn rofi við strandlengju Akureyrarbæjar og við Glerá.
Félagssvæði KA - stúka, félagsaðstaða og völlur
Málsnúmer 2022110164Lagt fram minnisblað dagsett 2. mars 2023 varðandi niðurstöðu útboðana: Lagnir og yfirborðsfrágangur og flóðlýsing, á nýjum keppnisvelli á íþróttasvæði KA
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Nesbræður ehf. á grundvelli tilboðs þeirra að upphæð kr. 159.561.281. Tvö tilboð bárust.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið verði til samninga við Metatron ehf. um 800lux lýsingu á grundvelli tilboðs þeirra frá því í október 2022. Eitt tilboð barst.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir vonbrigðum yfir því að KSÍ skuli gera kröfur um lágmarksaðbúnað án samráðs við sveitarfélög sem bera kostnaðinn við uppbyggingu íþróttamannvirkja á Íslandi.Hopp - fyrirspurn til skipulagssviðs
Málsnúmer 2020090583Lagður fram til upplýsingar, samningur við hlaupahjólaleiguna Hopp Akureyri.
Bifreiðastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2023020987Lagt fram til kynningar skilamat dagsett 15. febrúar 2023 vegna innleiðingar gjaldskyldu á bílastæðum í Akureyrarbæ.
Holtahverfi - gatnagerð og lagnir
Málsnúmer 2021023068Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla nr. 3 dagsett í janúar 2023 vegna framkvæmda við Holtahverfi á Akureyri.
Strætisvagnar Akureyrar - kaup á strætisvagni
Málsnúmer 2022021078Lagt fram minnisblað dagsett 3. mars 2023 varðandi endurnýjun á strætisvagni.