Skólanefnd - 13
- Kl. 13:30 - 15:35
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Dagný Þóra Baldursdóttirvaraformaður
- Pétur Maack Þorsteinsson
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
Tilraunaverkefni í Giljaskóla
Málsnúmer 2016090002Jón Baldvin Hannesson skólastjóri Giljaskóla kom á fundinn og sagði frá tilraunaverkefni sem unnið var í Giljaskóla síðastliðinn vetur.
Skólanefnd þakkar Jóni Baldvin fyrir áhugaverða kynningu.
Rekstur fræðslumála 2016
Málsnúmer 2016030017Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála tímabilið janúar-júlí 2016.
Fjárhagsáætlun fræðslumála 2017
Málsnúmer 2016080015Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir helstu lykiltölur í rekstri fræðslumála og þróun í málaflokknum.
Samráðsfundir Félags stjórnenda leikskóla 2016-2020
Málsnúmer 2016090005Lagt fram til kynningar erindi frá félagi stjórnenda leikskóla er varðar endurmenntun og samráð stjórnenda og rekstraraðila. Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir málið.
Skólanefnd samþykkir að beina erindinu um endurupptöku námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna til bæjarráðs vegna fjárhagsáætlunar 2017.
Frumkvæðisúttekt Persónuverndar á Mentor
Málsnúmer 2012121255Lögð fram til kynningar frumkvæðisúttekt Persónuverndar á notkun Mentor í skólum.
Skólapúlsinn - ytra mat skóla
Málsnúmer 2015010179Lagðar fram til kynningar niðurstöður úr könnun sem Samband íslenskra sveitarfélaga lét gera á viðhorfi stjórnenda til notkunar á Skólapúlsinum.