Bæjarráð - 3519
- Kl. 08:30 - 11:30
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3519
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Logi Már Einarsson
- Matthías Rögnvaldsson
- Gunnar Gíslason
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Menningarfélag Akureyrar - MAK
Málsnúmer 2016030110Farið yfir rekstur Menningarfélags Akureyrar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri Akureyrarbæjar sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð frestar afgreiðslu.
Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - endurskoðun
Málsnúmer 2015120168Lögð fram drög að endurskoðaðri mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.
Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri, Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar og Birna Eyjólfsdóttir mannauðsráðgjafi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista mætti á fundinn kl. 09:20.Bæjarráð vísar drögum að endurskoðaðri mannauðsstefnu Akureyrarbæjar til bæjarstjórnar.
Ný húsnæðislöggjöf - áhrif á sveitarfélög
Málsnúmer 2016060056Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 23. ágúst 2016 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar á sveitarfélög.
Kristjánshagi 2 og Davíðshagi 4 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Málsnúmer 201608007315. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 24. ágúst 2016:
Erindi dagsett 19. ágúst 2016 þar sem Sigurður Sigurðsson fyrir hönd SS byggis ehf,
kt. 620687-2519, sækir um breytingu á deiliskipulagi Kristjánshaga 2 og Davíðshaga 4. Meðfylgjandi er tillaga unnin af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi, dagsett 24. ágúst 2016 og samþykki nágranna.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða samþykkir skipulagsnefnd að grenndarkynna erindið.
Þar sem samþykki nágranna liggur fyrir telst grenndarkynningu lokið. Skipulagsnefnd samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og málinu lokið samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 11. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2016.Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar.
Eyþing - aðalfundur 2016
Málsnúmer 2016080089Rætt um samstarf sveitarfélaga um sameiginleg verkefni.
Bæjarráð óskar eftir því við stjórn Eyþings að tekin verði umræða á aðalfundinum um samstarf sveitarfélaga og hagkvæmni og skilvirkni í sameiginlegum verkefnum sveitarfélaga.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lagðar fram til kynningar fundargerðir 281. og 282. fundar stjórnar Eyþings dagsettar 31. maí og 27. júní 2016.
Fundargerðirnar má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdirLegatsjóður Jóns Sigurðssonar
Málsnúmer 2016030151Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra varðandi tilnefningu í stjórn Legatsjóðs Jóns Sigurðssonar.
Bæjarráð veitir stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar fullt umboð til að tilnefna fulltrúa í stjórn sjóðsins.
Frumvarp til laga um námslán og námsstyrki, 794. mál
Málsnúmer 2016080064Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. ágúst 2016 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um námslán og námsstyrki, 794. mál, 2016. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 31. ágúst nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/1373.html
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista vék af fundi kl. 10:50.