Skólanefnd - 1
18.01.2016
Hlusta
- Kl. 13:30 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista boðaði forföll, varamaður hennar Kristján Ingimar Ragnarsson mætti í hennar stað kl. 13:55 (vegna ferða Hríseyjarferju).[line]
Kynning á verkefni í Giljaskóla
Málsnúmer 2016010126Jón Baldvin Hannesson skólastjóri Giljaskóla kom á fundinn til að kynna verkefni sem Giljaskóli er að hrinda í framkvæmd.
Verkefnið snýr að umbótum á virkni nemenda, fjölbreytni í kennsluháttum og bættum starfsaga. Markmiðið er að auka gleði og ánægju nemenda og allra starfsmanna í skólanum en einnig almennan námsárangur.Rekstur fræðslumála 2015
Málsnúmer 2015040087Rekstur fræðslumála janúar - nóvember 2015.
Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri skóladeildar fór yfir stöðuna.Tröllaborgir - úttekt á starfi leikskóla
Málsnúmer 2012121107Lagt fram til kynningar ytra mat á leikskólanum Tröllaborgum.
Erindi frá leikskólastjórum - bætt námsumhverfi barna og bætt starfsumhverfi starfsfólks á leikskólum
Málsnúmer 2016010117Kristlaug Svavarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra á fundinum fór yfir málið til kynningar.