Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 544
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 544
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Ólafur Jakobsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Gata sólarinnar 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi
Málsnúmer 2015060004Erindi dagsett 29. maí 2015 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Úrbótamanna ehf., kt. 410685-0598, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi nr. 4 við Götu sólarinnar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynjar Einarsson. Innkomnar teikningar 9. júní 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Gata sólarinnar 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi
Málsnúmer 2015060005Erindi dagsett 29. maí 2015 þar sem Brynjar Einarsson f.h. Úrbótamanna ehf., kt. 410685-0598, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi nr. 6 við Götu sólarinnar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Brynjar Einarsson. Innkomnar teikningar 9. júní 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Fossatún 1 - byggingarleyfi einbýli
Málsnúmer BN080013Erindi dagsett 1. júní 2015 þar sem Samúel Smári Hreggviðsson f.h. Gunnþórs Þórarins Þórarinssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1 við Fossatún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Samúel Smára Hreggviðsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hrafnaland 5 - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi
Málsnúmer 2015060041Erindi dagsett 3. júní 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS-Byggis, kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 5 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hrafnaland 3 - umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi
Málsnúmer 2015060069Erindi dagsett 8. júní 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS-Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð nr. 3 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hafnarstræti 71 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2015040240Erindi dagsett 30. apríl 2015 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Morgunhana ehf., kt. 441105-0880, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 71 við Hafnarstræti. Meðfylgjandi er teikning eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 4. júní 2015.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Melasíða 1, íbúð 102 - byggingarleyfi fyrir yfirbyggingu svala
Málsnúmer 2015050108Erindi dagsett 13. maí 2015 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Þorsteins Péturssonar sækir um byggingarleyfi fyrir yfirbyggingu svala á íbúð nr. 102 í Melasíðu 1. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar teikningar 4. júní 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu 2015
Málsnúmer 2015030238Erindi dagsett 4. júní 2015 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 15. apríl 2015.
Um er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningum við:
1. Ljósstofn GLER ídráttur í Hörgárbraut og brunnar.
2. Ídráttur og gröftur í Skarðshlíð, Undirhlíð og Höfðahlíð.
3. Ídráttur og gröftur í Hörpulundi og Mýrarvegi.
Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.Skipulagsstjóri samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.
Vanabyggð 17 - breytingar á gluggum
Málsnúmer 2015050070Erindi dagsett 8. júní 2015 þar sem Hannes Helgason og Stefán Heiðberg Halldórsson sækja um breytingar á gluggum í Vanabyggð 17. Meðfylgjandi er teikning Árna Gunnar Kristjánsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Ægisgata 9 - uppgröftur á olíugeymi
Málsnúmer 2015060067Erindi dagsett 5. júní 2015 þar sem Guðlaugur Pálsson f.h. N1 hf., kt. 540206-2010, sækir um leyfi til að grafa upp bensíngeymi á lóð nr. 9 við Ægisgötu, Hrísey. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Ósvör 2 - uppgröftur á eldsneytisgeymi
Málsnúmer 2015060068Erindi dagsett 5. júní 2015 þar sem Guðlaugur Pálsson f.h. N1 hf., kt. 540206-2010, sækir um leyfi til að grafa upp eldsneytisgeymi og lagnir á lóð nr. 2 við Ósvör. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Réttarhvammur 1 og 3 - umsókn um uppsetningu hliðs
Málsnúmer 2015060084Erindi dagsett 9. júní 2015 þar sem Óskar Óskarsson f.h. Gúmmívinnslunnar ehf., kt 450509-1670, óskar eftir að fá að setja upp hlið við innkeyrslu á lóðina nr. 1 við Réttarhvamm. Meðfylgjandi er yfirlýsing um aðkomu að Réttarhvammi 3 um hliðið og lóð Réttarhvamms 1. Meðfylgjandi er teikning er sýnir staðsetningu hliðsins.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Daggarlundur 9 - umsókn um frest
Málsnúmer 2014090024Erindi dagsett 9. júní 2015 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyri tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um greiðslu- og framkvæmdafrest til 1. október 2015 vegna lóðar nr. 7 við Daggarlund.
Skipulagsstjóri veitir framkvæmdafrest til 15. september 2015. Sækja þarf um gjaldfrest á gatnagerðargjöldum til fjárreiðudeildar Akureyrarkaupstaðar.
Daggarlundur 7 - umsókn um frest
Málsnúmer 2014090023Erindi dagsett 9. júní 2015 þar sem Heiðar Jónsson f.h. Óseyri tíu ehf., kt. 570409-0930, sækir um greiðslu- og framkvæmdafrest til 1. október 2015 vegna lóðar nr. 9 við Daggarlund.
Skipulagsstjóri veitir framkvæmdafrest til 15. september 2015. Sækja þarf um gjaldfrest á gatnagerðargjöldum til fjárreiðudeildar Akureyrarkaupstaðar.
Boltafjör - umsókn um stöðuleyfi
Málsnúmer 2015060023Erindi dagsett 2. júní 2015 þar sem María Arngrímsdóttir, og Erla Dögg Ólafsdóttir f.h. Boltafjörs - Vatnaboltar ehf., kt. 470515-2520, sækja um stöðuleyfi fyrir Boltafjörstæki á planinu fyrir framan Íslandsbanka eða á flötinni fyrir framan Samkomuhúsið. Um er að ræða 6 daga á tímabilinu 20. júní - 23. ágúst 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið í samræmi við grein 3.D í samþykkt Akureyrarbæjar um götu- og torgsölu.