Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 447
- Kl. 13:30 - 14:45
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 447
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 91 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013060112Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Reita ehf., kt. 510907-0940, sækir um leyfi til breytinga á Hafnarstræti 91. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Helgamagrastræti 6 - bílastæði
Málsnúmer 2013060093Erindi dagsett 6. júní 2013 þar sem Jóhann Einar Jónsson f.h. Einars Arnar Ólafssonar sækir um breytingu á lóð við Helgamagrastræti 6.\nMeðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Jóhann Einar Jónsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

Knattspyrnudeild KA - skilti
Málsnúmer 2013060122Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Gunnar Gunnarsson f.h. Knattspyrnudeildar K.A, kt. 510991-1849, sækir um leyfi til þriggja ára fyrir skiltum vegna heimaleikja.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið og vísar í meðfylgjandi bréf um leyfða staðsetningu skiltanna og skilyrði vegna þeirra.Lerkilundur 28 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013060117Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Leifur K. Þorsteinsson sækir um leyfi fyrir heitum potti við Lerkilund 28. Meðfylgjandi er skráningartafla og teikningar.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Leifur Þorsteinsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins.
Tryggvabraut 16 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013020084Erindi dagsett 8. febrúar 2013 þar sem Helgi Örlygsson f.h. Nýju Kaffibrennslunnar ehf., kt. 440700-2760, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í Tryggvabraut 16. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnlaug Ó. Johnson.\nInnkomnar teikningar og gátlisti 3. apríl 2013.\nInnkomnar teikningar 6. júní 2013.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Bíladagar 2013
Málsnúmer 2013060139Erindi í tölvupósti dagsettum 5. júní 2013 frá Páli St. Steindórssyni f.h. Bílaklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir leyfi fyrir viðburðaskiltum, paintballvelli við Hafnarstræti, græjukeppni við Shell Hörgárbraut og tjaldsvæði á svæði félagsins við Hlíðarfjallsveg.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið og vísar í meðfylgjandi bréf um leyfða staðsetningu skilta og skilyrði vegna þeirra. Haft skal samráð við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra vegna tjaldsvæðis.

Skilti skulu fjarlægð 18. júní n.k. Þrifið skal og gengið frá svæði fyrir paintball eins og tekið var við því.

Surtlugata 8 - umsókn um viðbyggingu
Málsnúmer 2012110046Erindi dagsett 8. nóvember 2012 þar sem Þorbjörn Guðrúnarson sækir um leyfi fyrir viðbyggingu og breytingum á Surtlugötu 8. Meðfylgjandi er afstöðumynd. Innkomnar teikningar 4. júní 2013.\nInnkomnar teikningar 11. júní 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Súluvegur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013060128Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Gísli Kristinsson f.h. Auðhumlu svf, kt. 460269-0599, sækir um byggingarleyfi við Súluveg 1. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Gísla Kristinsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði og óskar eftir að leiðrétt gögn verði send hið fyrsta svo hægt verði að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdunum.
Íslenska Kjötfélagið - grillvagn
Málsnúmer 2013060124Erindi dagsett 10. júní 2013 þar sem Ásgeir Ósmann f.h. Íslenska Kjötfélagsins ehf., kt. 621111-0270, sækir um leyfi fyrir veitingavagni helgina 14. - 17. júní 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir að vagninn megi setja niður á reit merktan 2,2 á meðfylgjandi uppdrætti dagana 14. - 16. júní n.k. að uppfylltu samþykki Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.

Varðandi leyfi fyrir vagninum 17. júní þarf umsækjandi að fá leyfi skátanna á Akureyri sem sjá um hátíðarhöldin þann dag.

Oddeyrartangi 149144 - breytt starfsemi í norðurhúsi (nr. 2)
Málsnúmer 2013060136Erindi dagsett 11. júní 2013 þar sem Ásta Hrönn Björgvinsdóttir f.h. Olíuvinnslunnar ehf., kt. 490413-0730, sækir um leyfi til að breyta húsnæðinu fyrir lífdíselframleiðslu. Meðfylgjandi eru teikningar.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Skipulagsstjóri óskar eftir umsögnum frá Slökkviliði og Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.