Velferðarráð - 1244
- Kl. 14:00 - 14:55
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1244
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Árný Ingveldur Brynjarsdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Sérstakur húsnæðisstuðningur - reglur
Málsnúmer 2016120021Á fundi bæjarstjórnar þann 3. janúar 2017 var tekin fyrir afgreiðsla velferðarráðs á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning frá 28. desember 2016. Bæjarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu og vísa málinu aftur til velferðarráðs.
Velferðarráð sér ekki ástæðu til breytinga á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning, samþykkir þær óbreyttar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Lautin - endurnýjun þjónustusamnings
Málsnúmer 2016120164Lögð fram drög að þjónustusamningi við Rauða Kross Íslands - Eyjafjarðardeild og Geðverndarfélag Akureyrar um rekstur Lautarinnar, dagsathvarfs fyrir einstaklinga með geðraskanir.
Velferðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi og felur Jóni Hróa Finnssyni sviðsstjóra búsetusviðs að ganga frá undirritun.
Velferðarráð óskar eftir að framlag og kostnaður vegna húsnæðis komi fram í rekstraráætlun.Árný Ingveldur Brynjarsdóttir vék af fundi kl. 14:40.
Umsögn um drög að framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks
Málsnúmer 2016120053Lögð fram drög að umsögn velferðarráðs um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks.
Velferðarráð samþykkir tillögu að umsögn og felur Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að koma henni á framfæri.