Íþróttaráð - 110
- Kl. 14:00 - 16:00
- Íþróttahúsið við Laugargötu
- Fundur nr. 110
Nefndarmenn
- Nói Björnssonformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Þorvaldur Sigurðsson
- Erlingur Kristjánsson
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Dýrleif Skjóldaláheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Íþróttaráð - heimsóknir í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2011040054Farin var skoðunarferð um Sundlaug Akureyrar og íþróttahúsið við Laugargötu.

Íþróttaráð þakkar forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar fyrir leiðsögn um svæðið.

Sundlaug Akureyrar - rekstur 2008-2011
Málsnúmer 2012050048Lagt fram til kynningar yfirlit Karls Guðmundssonar verkefnastjóra innra eftirlits dags. 12. apríl 2012 um rekstur Sundlaugar Akureyrar á árunum 2008-2011.\nElín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð þakkar Karli fyrir samantektina og Elínu fyrir yfirferðina.

Sundlaug Akureyrar - afsláttur fyrir hópa
Málsnúmer 2012020042Rætt um viðmið vegna afsláttar af aðgangseyri til hópa.\nElín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð samþykkir að bjóða upp á 10 miða kort fyrir börn á kr. 1.300. Fyrir stóra hópa, 400 manns eða fleiri, verður í boði 35% afsláttur.

Dýrleif Skjóldal vék af fundi kl. 15:45 og Þorvaldur Sigurðsson kl. 16:00.
Íþróttabandalag Akureyrar - bréf frá SKA snjóbrettadeild
Málsnúmer 2012040041Tekið fyrir að nýju erindi dags. 2. apríl 2012 frá stjórn Íþróttabandalags Akureyrar þar sem vísað er í bréf frá Skíðafélagi Akureyrar varðandi ósk um bætta aðstöðu snjóbrettaiðkenda sunnan Skautahallar. Stjórn ÍBA mælir með því að aðstaða fyrir iðkendur verði bætt. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi íþróttaráðs 26. apríl sl. og forstöðumanni íþróttamála falið að afla nánari upplýsinga um málið.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála að leita eftir samvinnu um málið við framkvæmdadeild.

Kraftlyftingafélag Akureyrar - stuðningur til fjárfestinga á endurbættum keppnisbúnaði
Málsnúmer 2012040119Erindi dags. 23. apríl 2012 frá Grétari Skúla Gunnarssyni f.h. Kraftlyftingafélags Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk vegna endurnýjunar á æfinga- og keppnisbúnaði.

Íþróttaráð frestar afgreiðslu og felur formanni að ræða við bréfritara.

Sparkvellir - umgengnisreglur
Málsnúmer 2012050054Tekin fyrir fyrirspurn sem barst í gegnum akureyri.is frá ungum knattspyrnuiðkanda um umgengnisreglur á sparkvöllum sem staðsettir eru við grunnskóla bæjarins.

Íþróttaráð minnir notendur sparkvallanna á að fara eftir þeim umgengnisreglum sem í gildi eru og hanga uppi við vellina. Þar kemur m.a. fram að eldri einstaklingum sé heimilt að nota völlinn ef hann stendur ónotaður en skuli víkja tafarlaust ef börn eða unglingar óska afnota af honum.