Öldungaráð - 3
- Kl. 09:00 - 10:40
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Helgi Snæbjarnarsonformaður
- Arnrún Halla Arnórsdóttir
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sigríður Stefánsdóttirfulltrúi EBAK
- Halldór Gunnarssonfulltrúi EBAK
- Valgerður Jónsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Velferðarstefna 2018-2023
Málsnúmer 2018081103Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri búsetusviðs kynnti velferðarstefnu Akureyrarbæjar.
Öldungaráð þakkar Laufeyju fyrir kynninguna.
Öldungaráð leggur áherslu á að ráðið fái aðkomu að allri stefnumótun og útfærslu á aðgerðaáætlunum er snúa að eldri borgurum.
Lagt er til að haldinn verði samráðsfundur á milli öldungaráðs og velferðarráðs um málefni eldri borgara.
Einnig er lagt til að farið verði í endurskoðun á velferðarstefnu Akureyrarbæjar.Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun 2020 - samráð öldungaráðs og bæjarráðs
Málsnúmer 2019050217Formaður og varaformaður gerðu grein fyrir fundi sem þau sátu með bæjarráði þann 6. júní sl.
Öldungaráð ítrekar að tekið verði tillit til tillagna sem lagðar voru fram á fundinum með bæjarráði við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Er gott að eldast á Norðurlandi - málþing 10. október 2019
Málsnúmer 201908050010. október nk. verður haldið málþing með yfirskriftinni "Er gott að eldast á Norðurlandi/Akureyri". Að málþinginu standa SAk, HA, HSN og Akureyrarbær.
Undirbúningshópur málþingsins vill kanna hvort fulltrúi öldungaráðs vill vera með 15 mínútna erindi af sýn aldraðra á að eldast á Akureyri.Öldungaráð fagnar því að málþingið verði haldið og mun bregðast við erindinu með jákvæðum hætti.