Öldungaráð - 8
- Kl. 09:00 - 10:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 8
Nefndarmenn
- Helgi Snæbjarnarsonformaður
- Elías Gunnar Þorbjörnsson
- Sigríður Stefánsdóttirfulltrúi EBAK
- Halldór Gunnarssonfulltrúi EBAK
- Valgerður Jónsdóttirfulltrúi EBAK
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Akureyrarbæjar um þjónustu Öldrunarheimila Akureyrar
Málsnúmer 2020040564Halldór S. Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA mætti á fundinn og gerði grein fyrir þeirri ákvörðun heilbrigðisráðherra að fela HSN að taka tímabundið við rekstri ÖA.
Öldungaráð telur mikilvægt að vernda þá góðu þjónustu sem byggð hefur verið upp á Öldrunarheimilum Akureyrar og fylgst verði með þróun samninga og gæði þjónustu eftir yfirfærslu.
Starfsreglur öldungaráðs
Málsnúmer 2020030048Farið yfir drög að starfsreglum öldungaráðs.
Afgreiðslu frestað.
Sameiginlegur fundur öldungaráðs og bæjarstjórnar
Málsnúmer 2020010596Til umræðu undirbúningur fyrir sameiginlegan fund með bæjarstjórn.
Öldungaráð óskar eftir að fundurinn verði haldinn sem fyrst og felur formanni og varaformanni að undirbúa málefni sem lögð verða fram til umræðu.
Aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020 vegna COVID-19
Málsnúmer 2020050512Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs gerði grein fyrir því hvernig styrkur frá félagsmálaráðuneytingu nýttist til að auka við félagsstarf fullorðinna sumarið 2020.
Öldungaráð lýsir yfir ánægju með aukið félagsstarf sumarið 2020. Ráðið telur þó að bæta hefði mátt skipulag og framboð með samráði við öldungaráð, en ekki síður við Félag eldri borgara á Akureyri, en félagið sér samkvæmt samningi um rekstur félagsstarfsins í Bugðusíðu. Ekkert samráð var haft við félagið og engin ósk barst til þess að standa fyrir og sjá um hluta af þessari viðbót.
Öldungaráð - ýmis mál
Málsnúmer 2019020301Drög að bæklingi búsetusviðs um velferðartækni lagður fram til kynningar.
Öldungaráð lýsir yfir ánægju með þetta framtak.
Notendaráð félagsmiðstöðva eldri borgara
Málsnúmer 2020080188Lögð fram greinargerð frá Félagi eldri borgara á Akureyri um notendaráð félagsmiðstöðva eldri borgara í Víðilundi og Bugðusíðu.
Öldungaráð felur starfsmanni að vinna málið áfram.
Félag eldri borgara á Akureyri - samkomulag
Málsnúmer 2008010206Ársreikningur EBAK fyrir árið 2019 ásamt fundargerð aðalfundar frá því 2. júní 2020 lögð fram til kynningar.
Hvannavallareitur - deiliskipulag
Málsnúmer 2015030191Óskað er eftir umsögn öldungaráðs vegna deiliskipulags á Hvannavallareit.
Öldungaráð gerir ekki athugasemdir en lýsir yfir ánægju með bætt aðgengi og umferðaröryggi.