Umhverfis- og mannvirkjaráð - 87
- Kl. 08:15 - 12:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 87
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
- Jónas Valdimarssonverkefnastjóri hönnunar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Hopp - fyrirspurn til skipulagssviðs
Málsnúmer 2020090583Pétur Ingi Haraldsson sviðstjóri skipulagssviðs kynnti fyrir ráðinu samningsdrög að stöðvalausri hjólaleigu á Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að gerður verði þjónustusamningur um stöðvalausa hjólaleigu við umsækjanda í samræmi við fyrirliggjandi samningsdrög.
SVA - leiðakerfi 2020
Málsnúmer 2020020042Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar kynnti fyrir ráðinu drög að nýju leiðakerfi strætó.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna.
Glerá - göngu- og reiðbrú ásamt stíg
Málsnúmer 2019110416Lagt fram minnisblað dagsett 9. október 2020 varðandi kostnaðarskiptingu á nýrri brú og reiðleið yfir Glerá.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða kostnaðarskiptingu og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að ganga frá samningi þess efnis.
Lundarskóli - A-álma
Málsnúmer 2020060448Lagt fram minnisblað dagsett 15. október 2020 vegna opnunar tilboða í framkvæmdir við Lundarskóla.
Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda ÁK smíði ehf.
Sólvallagata 7 - sala
Málsnúmer 2020080611Kaupsamningur vegna sölu á Sólvallagötu 7 í Hrísey lagður fyrir ráðið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir söluna fyrir sitt leyti.
Sandgerðisbót - íbúðir
Málsnúmer 2019110467Lögð fram stöðuskýrsla dagsett 14. október 2020 varðandi framkvæmdir í Sandgerðisbót.
Rekstur leiguíbúða
Málsnúmer 2020100386Lagt fram minnisblað dagsett 14. október 2020 vegna viðhalds á leiguíbúðum hjá Akureyrarbæ.
Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021
Málsnúmer 2020080605Teknar fyrir gjaldskrár umhverfis- og mannvirkjasviðs og drög að framkvæmdaáætlun 2021-2024.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrirlagða gjaldskrá á vinnu tæknimanna á skrifstofu umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu gjaldskrár umhverfismiðstöðvar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð ræddi framkvæmdaáætlun og vísar henni til frekari umræðu í bæjarráð.Snjómokstur 2020-2021
Málsnúmer 2020100385Snjómokstur fyrir veturinn 2020-2021 ræddur.
Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar og Jón S. Hansen verkstjóri á umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.