Bæjarráð - 3660
- Kl. 08:15 - 10:54
- Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3660
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Hlíðarfjall - rekstur
Málsnúmer 2019070527Lagt fram minnisblað um áætlun þess efnis að breyta rekstri Hlíðarfjalls sem hefur verið A-hluta fyrirtæki í B-hluta fyrirtæki.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs, Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir að breyta rekstri Hlíðarfjalls frá 1. janúar 2020 í B-hluta fyrirtæki með þriggja manna stjórn og felur bæjarstjóra að vinna að nauðsynlegum skipulagsbreytingum vegna þessa. Bæjarráð vísar þessari bókun til bæjarstjórnar.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023
Málsnúmer 2019020276Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2019
Málsnúmer 2019040448Lagt fram til kynningar níu mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Hönnunarstaðall Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2018100303Kynnt drög að hönnunarstaðli og uppfærðum reglum um merki bæjarins.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2019
Málsnúmer 2019010399Lögð fram til kynningar fundargerð 875. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 25. október 2019.
Fundargerðina má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx