Fræðslu- og lýðheilsuráð - 2
- Kl. 13:30 - 15:30
- Fjarfundur
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Eva Hrund Einarsdóttirformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Gunnar Már Gunnarsson
- Hilda Jana Gísladóttir
- Viðar Valdimarsson
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
- Alfa Aradóttirforstöðumaður forvarna
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
- Telma Ósk Þórhallsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
Forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti
Málsnúmer 2021060431Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna kynnti rannsóknarniðurstöður Rannsóknar og greiningar sem lúta að forvörnum í stafrænu umhverfi hjá unglingum.
Silja Rún Reynisdóttir forvarnafulltrúi lögreglunnar sat fundinnn undir þessum lið.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fyrir greinargóðar upplýsingar og fagnar því að búið sé að fastráða forvarnafulltrúa innan lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
Ráðið óskar eftir því að starfsmenn á fræðslu- og lýðheilsusviði komi sérstaklega á framfæri til foreldra sláandi niðurstöðum úr könnun Rannsóknar og greiningar er lúta að kynferðislegri friðhelgi ungmenna.
Ráðið óskar eftir að fá stöðu á innleiðingu Akureyrarbæjar á aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreiti sbr. þingályktunartillögu nr. 37/150 á fjórða fundi ráðsins.Íþróttadeild - frístundaakstur - styrkir til félaga vegna aksturs
Málsnúmer 2021120871Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála gerði grein fyrir tillögum að fyrirkomulagi á útdeilingu styrkja til frístundaaksturs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir tillögu að fyrirkomulagi við útdeilingu styrkja til félaga vegna frístundaaksturs.
Um fullnaðarafgreiðslu er að ræða.Fylgiskjöl
Afrekssjóður Akureyrar
Málsnúmer 2012100159Tillaga að heiðursviðurkenningu lögð fram á fundinum.
Fundargerð afrekssjóðs Akureyrar dagsett 20. desember 2021 lögð fram til kynningar.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir tillögu að heiðursviðurkenningahafa.
Meirihluti fræðslu- og lýðheilsuráðs hefur ásamt heiðursviðurkenningu ákveðið að veita hvatningarverðlaun til aðila sem hafa með eftirtektarverðum og framúrskarandi hætti verið hvatning og fyrirmynd fyrir aðra á sviði íþrótta- eða tómstunda.
Viðar Valdimarsson M-lista situr hjá við afgreiðsluna.
Meirihluti fræðslu- og lýðheilsuráðs samþykkir tillögu að hvatningarverðlaunahafa. Viðar Valdimarsson M-lista situr hjá við afgreiðsluna.Frístundastyrkur tómstundaávísun
Málsnúmer 2006040018Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála gerði grein fyrir notkun á frístundastyrk árið 2021.
Fylgiskjöl
Aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara
Málsnúmer 2020010595Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður tómstundarmála gerði grein fyrir stöðu aðgerða í málefnum eldri borgara.
Fylgiskjöl
Tómstundanámskeið barna - 2022
Málsnúmer 2022010967Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður tómstundamála gerði grein fyrir stöðu tómstundanámskeiða fyrir börn og lagði fram minnisblað.
Fræðslu- og lýðheilsusráð felur formanni fræðslu- og lýðheilsuráðs og sviðsstjóra að vinna málið áfram.
Hollvinafélag Húna II - samningur 2022
Málsnúmer 2022011101Drög að samningi við Hollvinafélag Húna II lögð fram til staðfestingar.
Frestað til næsta fundar.