Stjórn Akureyrarstofu - 256
- Kl. 16:00 - 20:25
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 256
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs
Stjórn Akureyrarstofu - samráðsfundir með forstöðumönnum
Málsnúmer 2018080020Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri Akureyrarstofu fór yfir starfsemi Akureyrarstofu og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður og Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins komu á fundinn og kynntu starf stofnananna. Aðalbjörg Sigmarsdóttir héraðsskjalavörður gat ekki verið á fundinum en mun kynna Héraðsskjalasafnið síðar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar starfsmönnum fyrir greinargóðar kynningar.
Samfélagssvið, fjárhagsáætlun 2019
Málsnúmer 2018060438Lögð fyrir tillaga að gjaldskrá fyrir Listasafnið á Akureyri og drög að reglum um útleigu á sjálfstætt reknum vinnustofum og sýningarrými í húsnæði safnsins. Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagða tillögu að gjaldskrá og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu hjá bæjarráði. Einnig samþykkir stjórnin viðmiðunarreglur um útleigu á sjálfstætt reknum vinnustofum og sýningarrými í húsnæði Listasafnsins.
Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2017
Málsnúmer 2018060072Ársreikningur Minjasafnsins á Akureyri lagður fram til kynningar.
Minjasafnið á Akureyri - endurnýjun þjónustusamnings
Málsnúmer 2016040100Endurnýjun þjónustusamnings við Minjasafnið tekin fyrir að nýju.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarráðs og óskar jafnframt eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð 8.300.000 kr.
Viðburðasjóður Hofs og Samkomuhússins
Málsnúmer 2018080024Á síðasta starfsári Menningarfélags Akureyrar (MAk) var í samvinnu Akureyrarstofu og félagsins gerð tilraun með Tónlistarsjóð Hofs og Samkomuhússins. Meginmarkmið sjóðsins voru m.a. að auðvelda ungu listafólki utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsin hafa upp á að bjóða og stuðla að fjölbreytileika í tónlistarviðburðum. Markmið tilraunarinnar var að undirbúa formlega stofnun sjóðs sem tæki til starfa á þessu ári. Í nýjum samningi Akureyrarbæjar og MAk er gert ráð fyrir þessu og nú er unnið að samþykktum og vinnureglum fyrir sjóð sem hefur víðtækara hlutverk en tilraunasjóðurinn. Auk þess er gert ráð fyrir að Menningarfélgið Hof sem annaðist rekstur Hofs í upphafi komi að nýja sjóðnum með fjárframlagi.
Drög að reglum lögð fram til kynningar.Myndlistaskólinn á Akureyri - skipan í starfshóp
Málsnúmer 2018070485Bæjarráð hefur óskað eftir að stjórn Akureyrarstofu skipi fulltrúa í starfshóp um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi í bænum. Tilefnið er m.a. að samningur bæjarins við Myndlistaskólann um stuðning við starfsemina rennur út í lok skólaárs 2018-2019.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Hildu Jönu Gísladóttur sem fulltrúa stjórnar Akureyrarstofu í starfshópinn.
Akureyrarkirkja - móttaka ferðamanna - styrkbeiðnir 2015-2020
Málsnúmer 2015050018Erindi dagsett 6. júní 2018 þar sem Hildur Eir Bolladóttir og Svavar Alfreð Jónsson, f.h. Akureyrarkirkju, óska eftir styrk til að mæta kostnaði við komu ferðamanna í kirkjuna í sumar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 50 þúsund.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2018
Málsnúmer 2018080040Lögð fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir málaflokka stjórnar Akureyrartofu fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2018.
Iðnaðarsafnið, beiðni um fjárstuðning
Málsnúmer 2018080050Erindi dagsett 12. júlí 2018 frá Þorsteini E. Arnórssyni, f.h. Iðnaðarsafnsins á Akureyri þar sem óskað er eftir auknum stuðningi Akureyrarbæjar við rekstur safnsins.
Afgreiðslu frestað.