Stjórn Akureyrarstofu - 219
- Kl. 11:00 - 12:15
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 219
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fjárhagsáætlun 2017 - stjórnar Akureyrarstofu
Málsnúmer 2016080056Farið yfir breytingar og lagfæringar á fjárhagsáætlun sem gera þarf á milli umræðna í bæjarstjórn.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi breytingar á fjárhagsáætlum sem gerðar hafa verið á milli umræðna í bæjarstjórn. Litlar hækkanir hafa orðið á gjaldskrám menningarstofnana á undanförnum árum og samþykkir stjórn Akureyrarstofu að þær hækki almennt um 3,5% á árinu 2017.
Menningarfélag Akureyrar - beiðni um kaup á búnaði
Málsnúmer 2016110028Fasteignum Akureyrarbæjar barst erindi þann 3. október sl. frá Þuríði Helgu Kristjánsdóttur framkvæmdastjóra MAk þar sem óskað er endurnýjunar á hjóðmixerum fyrir Hof. FA óskar staðfestingar stjórnar Akureyrarstofu á kaupunum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir kaupin fyrir sitt leyti og leggur til að fjárveitingar fylgi þeim í fjárhagsáætlun á leigutímanum. Jafnframt óskar stjórnin eftir því að FA og MAk ljúki sem fyrst við gerð áætlunar um endurnýjun á stofnbúnaði.