Skólanefnd - 4
- Kl. 13:30 - 15:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 4
Nefndarmenn
- Bjarki Ármann Oddssonformaður
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Skólastefna - endurskoðun
Málsnúmer 2014010001Skólanefnd felur fræðslustjóra að halda áfram vinnu með undirbúning nýrrar skólastefnu.
Húsnæði leik- og grunnskóla Akureyrar
Málsnúmer 2015020086Áframhaldandi vinna með hugleiðingar um leikskólauppbyggingu.
Skólanefnd leggur til að skipaður verði starfshópur til að gera tillögur um framtíðarlausnir varðandi uppbyggingu á leik- og grunnskólahúsnæði.
Hópinn skipa:
Bjarki Ármann Oddsson,formaður skólanefndar
Preben Pétursson, nefndarmaður í skólanefnd
Soffía Vagnsdóttir, fræðslustjóri
Fulltrúi Fasteigna Akureyrarbæjar
Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi og Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri, starfsmenn á skóladeild, verða starfsmenn hópsins.Lög um Menntamálastofnun
Málsnúmer 2015020082Lögð fram til kynningar lög um Menntamálastofnun.
Lög um grunnskóla (kæruleiðir, einkaskólar og fl.)
Málsnúmer 2015020104Lögð fram til kynningar lög um grunnskóla (kæruleiðir, einkaskólar og fl.).
Námskeið fyrir skólanefndir
Málsnúmer 2015020081Lagðar fram til kynningar upplýsingar um námskeið fyrir skólanefndir á Norðurlandi eystra, sem haldið verður á Hótel Natur á Svalbarðsströnd 14. mars nk.