Samfélags- og mannréttindaráð - 97
- Kl. 18:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 97
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Tryggvi Þór Gunnarssonvaraformaður
- Brynjar Davíðsson
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Jóhann Gunnar Sigmarsson
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Hjólabrettafélag Akureyrar
Málsnúmer 2011110058Rætt um málefni Hjólabrettafélags Akureyrar, mögulegt samstarf við félagsmiðstöðvar og æfingaaðstöðu innandyra með eftirliti.\nAlfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála og Gunnlaugur V. Guðmundsson umsjónarmaður félagsmiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir ánægju með frumkvæði Hjólabrettafélagsins og óskar eftir samstarfi við íþróttaráð um málið.

Hlín Bolladóttir mætti til fundar kl. 18:13.$line$
Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014
Málsnúmer 2010090136Starfsáætlun yfirfarin og unnið að uppfærslu.

Kynjasamþætting - tilraunaverkefni
Málsnúmer 2008090024Kynnt samantekt á svörum við spurningalista sem sendur var íþróttafélögunum KA og Þór sem liður í tilraunaverkefni um kynjasamþættingu.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar íþróttafélögunum fyrir þátttökuna. Ánægjulegt er að sjá að tímafjöldi vegna æfinga og æfingastaðir virðast sambærilegir milli kynja en heldur hallar á annað kynið þegar kemur að setu í nefndum og ráðum.

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2011
Málsnúmer 2011110059Rætt um þátttöku samfélags- og mannréttindaráðs í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.