Bæjarráð - 3616
- Kl. 08:15 - 11:03
- Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3616
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonsviðsstjóri fjársýslusviðs
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirforstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar ritaði fundargerð
Samningar um ræstingu
Málsnúmer 2018110045Umfjöllun um framkvæmd samninga um ræstingu á stofnunum Akureyrarbæjar.
Fram kom að samningar um ræstingu hafa í öllum tilvikum verið gerðir í kjölfar útboðs og eru alla jafna gerðir til fjögurra ára í senn. Í samningum Akureyrarbæjar er ákvæði um keðjuábyrgð samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar.
Ræstingafyrirtækin sem Akureyrarbær er með samninga við eru ekki að nýta sér þjónustu frá starfsmannaleigum heldur eru starfsmenn í öllum tilvikum ráðnir til viðkomandi fyrirtækis samkvæmt ákvæðum kjarasamnings Starfsgreinasambands Íslands við SA. Samkvæmt upplýsingum frá stéttarfélagi starfsmanna hefur framkvæmd á kjarasamningsákvæðum verið í ágætu lagi og ekkert komið upp á sem ástæða er til að taka til sérstakrar skoðunar.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019-2022
Málsnúmer 2018050147Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018 - viðauki
Málsnúmer 2017040095Lagður fram viðauki 14.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka að upphæð kr. 19.031.000 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fylgiskjöl
Hlíðarfjall - uppbygging heilsárs starfsemi
Málsnúmer 2018020052Rædd drög að skýrslu Hlíðarhryggs ehf. um möguleika á uppbyggingu í Hlíðarfjalli sem alhliða og heilsárs útivistar- og afþreyingarstaðar.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs og Sigmundur Einar Ófeigsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra samfélagssviðs og framkvæmdastjóra AFE að vinna áfram að málinu, afla frekari upplýsinga í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð fyrir nóvemberlok.
Rekstrarsamningar íþróttamannvirkja og aðildarfélaga ÍBA 2019
Málsnúmer 2018050236Liður 1 í fundargerð frístundaráðs dagsettri 7. nóvember 2018:
Farið yfir stöðu mála.
Geir Kristinn Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi ÍBA sat fundinn undir þessum lið.
Frístundaráð óskar eftir því við bæjarráð að fenginn verði úttektaraðili til að greina forsendur rekstrarsamninga íþróttamannvirkja á vegum Akureyrarbæjar.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs og sviðsstjóra samfélagssviðs að vinna áfram að málinu.
Ásthildur Sturludóttir vék af fundi kl. 10:40.
Brynja, Hússjóður Öryrkjabandalagsins - umsókn um stofnframlag 2018-2019
Málsnúmer 2018110012Erindi dagsett 30. október 2018 frá Birni Arnari Magnússyni f.h. Brynju, Hússjóðs Öryrkjabandalagsins þar sem óskað er eftir vilyrði fyrir stofnframlagi vegna kaupa á tíu tveggja herbergja íbúðum.
Bæjarráð fagnar áformum Brynju, Hússjóðs Öryrkjabandalagsins, gefur vilyrði fyrir stofnframlagi á árinu 2019 og vísar fjármögnun til fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl
Snorraverkefnið - styrkbeiðni 2015-2018
Málsnúmer 2014110256Erindi dagsett 18. október 2018 frá Halldóri Árnasyni formanni stjórnar Snorrasjóðs þar sem óskað er eftir stuðningi frá Akureyrarbæ við verkefnið árið 2019.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Eyþing - fundargerðir
Málsnúmer 2010110064Lögð fram til kynningar fundargerð 313. fundar stjórnar Eyþings dagsett 1. nóvember 2018. Fundargerðina má finna á netslóðinni: http://www.eything.is/is/fundargerdir-1