Velferðarráð - 1267
- Kl. 14:00 - 17:35
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1267
Nefndarmenn
- Erla Björg Guðmundsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðlaug Kristinsdóttir
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri ÖA
- Jón Hrói Finnssonsviðsstjóri búsetusviðs
- Steinunn Benna Hreiðarsdóttirfundarritari
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Lögð var fram áætlun um fundi velferðarráðs janúar til júní 2018.
Samráðsfundur um þjónustu við aldraða á Akureyri
Málsnúmer 2017120018Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs og Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar sögðu frá samráðsfundi aðila í öldrunarþjónustu á Akureyri sem haldinn var mánudaginn 27. nóvember síðastliðinn.
Undanþága frá reglum um leiguhúsnæði 2017 - áfrýjanir
Málsnúmer 2017040090Lögð var fram áfýjun vegna synjunar um undanþágu frá reglum um leiguíbúðir Akureyrarbæjar.
Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði sat fundinn undir þessum lið.Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru bókaðar í trúnaðarbók.
Styrkbeiðnir til velferðarráðs og frístundaráðs 2017
Málsnúmer 2016110088Lögð var fram styrkbeiðni vegna jólaaðstoðar mæðrastyrksnefndar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins á Akureyri.
Velferðarráð samþykkir 500 þúsund kr. styrk.
Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2017-2021
Málsnúmer 2017110413Lagt var fram erindi frá velferðarráðuneytinu vegna framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks sem samþykkt var sl. vor.
Ennfremur var lögð fram samantekt Karólínu Gunnarsdóttur forstöðumanns stoðþjónustu fjölskyldusviðs um verkefni sveitarfélaga í framkvæmdaáætuninni
dagsett 4. desember 2017.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vekur athygli umhverfis- og mannvirkjaráðs og skipulagsráðs á Þingsályktun um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021 og bendir sérstaklega á verkefni A2 og A3 um algilda hönnun og áætlanir um úrbætur á aðgengi og aðgengisfulltrúa. Velferðarráð mælir með því að Akureyrarbær skipi aðgengisfulltrúa.
Skipulagsbreytingar á búsetusviði
Málsnúmer 2017100443Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusvið og Laufey Þórðardóttir forstöðumaður stoðþjónustu búsetusviðs kynntu tillögur að breytingum á skipulagi starfsemi Gránufélagsteymis og Heimaþjónustu Stoðar. Tillögurnar fela í sér að starfseiningarnar verði sameinaðar í þeim tilgangi að auka samlegð og bæta samræmingu stuðnings við skjólstæðinga Gránufélagsteymisins.
Velferðarráð frestar afgreiðslu málsins.
Lautin - ósk um hækkun framlags ársins 2017
Málsnúmer 2017120013Lagt var fram erindi frá Hafsteini Jakobssyni, fyrir hönd verkefnisstjórnar Lautarinnar, athvarfs fyrir fólk með geðfötlun, um hækkun rekstrarstyrks ársins 2017.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Þar sem ekki er heimild í fjárhagsáætlun fyrir hækkun vísar velferðarráð erindi Lautarinnar til bæjarráðs. Ráðið lýsir sig meðmælt því að framlagið verði hækkað.
Aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum
Málsnúmer 2017110400Lögð var fram tilmæli bæjarráðs um endurskoðun aðgerðaráætlunar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð felur Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að hefja undirbúning endurskoðunar gegn kynbundnu ofbeldi.
Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017
Málsnúmer 2017020033Lögð voru fram drög að íþróttastefnu sem send voru velferðarráði til umsagnar.
Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir umsögn dagsetta 6. desember 2017.
Smáhýsaúrræði vegna einstaklinga með fjölþættan vanda
Málsnúmer 2016120134Umræða var um staðsetningu húsnæðisúrræða einstaklinga með fjölþættan vanda.
Sviðsstjórum fjölskyldusviðs og búsetusviðs falið að uppfæra minnisblað til skipulagsráðs.