Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 278
- Kl. 08:15 - 09:34
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 278
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Kristín Sigurðardóttirfundarritari
Stöðuskýrslur FA 2016
Málsnúmer 2016040037Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 2 fyrir stjórn FA dagsett 29. apríl 2016.
Færanlegar kennslustofur - sala 2016
Málsnúmer 2016040155Lögð fram tilboð sem bárust í tvær færanlegar kennslustofur.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Málsnúmer 2015120126Farið yfir tilboð sem bárust í endurnýjun á gervigrasi í Boganum.
Afgreiðslu frestað, beðið verður eftir sérfræðiáliti vegna innfyllingarefnis.
Hlíðarfjall - utanhússmálun á vélageymslu og Strýtu 2016
Málsnúmer 2016040043Lögð fram tilboð sem bárust í olíuburð á Strýtu.
Alls bárust þrjú tilboð í verkið og eru verðin sett eins og þau eru eftir yfirferð tilboða og magnbreytingu í verkinu:
GÞ málverk - kr. 3.971.000 - 111,0%
Björn málari - kr. 4.354.000 - 121,7%
Málarameistarinn þinn - kr. 4.414.800 - 123,4%
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda GÞ málverk.
Glerárskóli - endurbætur á tengigangi
Málsnúmer 2016050020Lagt fram minnisblað dagsett 4. maí 2016 um endurbæturnar.
Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara
Málsnúmer 2014080046Rætt um væntanlega vígsluathöfn á aðstöðu Skátafélagsins Klakks þann 11. maí 2016.
Verkfundargerðir FA 2016
Málsnúmer 2016010153Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Boginn gervigras: 4. fundur verkefnisliðs dagsettur 27. apríl 2016.
Skautahöll verkfundir Áveitan ehf: 6. og 7. verkfundur dagsettir 13. og 27. apríl 2016.