Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 395
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 395
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Ólafur Jakobsson
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Grænamýri 20 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2012030260Erindi dagsett 16. apríl 2012 þar sem Sigurður Sigurðsson og Hólmfríður Dóra Kristjánsdóttir sækja um leyfi til að gera bílastæði og aðkeyrslu frá Mýravegi að bakdyrainngangi húss síns að Grænumýri 20. Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Skipulagsstjóra hefur borist neikvæð umsögn framkvæmdadeildar og erindinu er því hafnað.Krókeyrarnöf 15 - umsókn um byggingarstjóra
Málsnúmer 2011120018Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Byggingarfélagið Hyrna ehf., kt. 710594-2019, óskar eftir að vera byggingarstjóri yfir nýbyggingunni nr. 15 við Krókeyrarnöf. Umboð hefur Helgi Snorrason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.Oddeyrartangi lnr. 149144 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2012040138Erindi móttekið 25. apríl 2012 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Skjaldborgar kröfuhafafélags 5 ehf., kt. 610510-2560, óskar eftir leyfi til að gera breytingar á rými milli eininga nr. 12 og nr. 15 og hefja þar starfsemi netaverkstæðis. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hauk Haraldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.Ránargata 10 - umsókn um breytingar
Málsnúmer BN100274Erindi dagsett 05.11.2010 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Maríu Jesperson, Antons Inga Þorsteinssonar, Eydísar Elvu Guðmundsdóttur og Axels Jónasar Stefánssonar sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun á kvistum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar ásamt skráningartöflu 26. apríl 2012.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Ráðhústorg 3 - breytt notkun
Málsnúmer 2012050002Erindi dagsett 27. apríl 2012 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Haralds Pálssonar leggur inn tillöguteikningar þar sem 2. hæð í Ráðhústorgi 3 er breytt úr skrifstofuhúsnæði í íbúð og gistieiningu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.

Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og mun afgreiða byggingarleyfi þegar umsókn um það berst.

Sjávargata 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2012040166Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Bjarna L. Thorarensen sækir um leyfi til að byggja vélageymslu við eldra hús á lóðinni Sjávargötu 1 (Eyrúnarskúr) í Hrísey, ásamt því að reisa tjaldskemmu til bráðabirgða. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.Eyjafjarðarbraut - flugvöllur - byggingarstjóri
Málsnúmer 2012020002Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Byggingarfélagið Hyrna ehf., kt. 710594-2019, óskar eftir að vera byggingarstjóri yfir viðbyggingu við tækjageymslu/slökkvistöð Mhl. 11 á Akureyrarflugvelli við Eyjafjarðarbraut. Umboð hefur Helgi Snorrason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.Dalsbraut - endurbætur á gluggum
Málsnúmer 2012040127Erindi móttekið 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að gera endurbætur á gluggum og hafa glerskipti í Lundarskóla að Dalsbraut.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og óskar eftir uppfærðum byggingarnefndarteikningum.
Austurbyggð 17 - framkvæmdir á lóð
Málsnúmer 2012040126Erindi dagsett 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um leyfi fyrir breytingum á lóðinni kringum Dvalarheimilið Hlíð að Austurbyggð 17.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu erindisins.Brekkugata 17 - endurbætur á gleri
Málsnúmer 2012040125Erindi móttekið 24. apríl 2012 þar sem Fasteignir Akureyrarbæjar, kt. 710501-2380, sækja um að gera endurbætur á gleri í byggingu Amtsbókasafnsins að Brekkugötu 17.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Hringteigur 2 - gámasvæði
Málsnúmer 2012050006Erindi dagsett 30. apríl 2012 þar sem Ingvar Ívarsson f.h. Fasteigna ríkissjóðs, kt. 690981-0259, sækir um byggingarleyfi fyrir gámasvæði vegna sorpflokkunar við VMA að Hringteig 2. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ingvar Ívarsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.