Öldungaráð - 44
19.02.2025
Hlusta
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 44
Nefndarmenn
- Hildur Brynjarsdóttir
- Brynjólfur Ingvarsson
- Hallgrímur Gíslasonfulltrúi EBAK
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttirfulltrúi EBAK
- Þorgerður Jóna Þorgilsdóttirfulltrúi EBAK
- Eva Björg Guðmundsdóttirfulltrúi HSN
Starfsmenn
- Birna Guðrún Baldursdóttirforstöðumaður tómstundamála ritaði fundargerð
Hjálmar Pálsson L-lista tilkynnti forföll og náði ekki í varamann sinn fyrir fund.
Staða öldrunarheimilisins
Málsnúmer 2025020718Þóra Sif Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Heilsuverndar hjúkrunarheimila sat fundinn undir þessum lið og sagði frá stöðu mála.
Öldungaráð þakkar Þóru fyrir kynninguna. Öldungaráð ítrekar enn og aftur áhyggjur sínar af stöðu mála varðandi biðlista og harmar seinagang í uppbyggingu hjúkrunarrýma á Akureyri.
Starfsáætlun öldungaráðs 2025
Málsnúmer 2025010727Farið yfir starfsáætlun öldungaráðs og lagðar fram tillögur að lítilsháttar breytingum.
Framkomnar breytingar samþykktar samhljóða.
Starfsreglur öldungaráðs
Málsnúmer 2020030048Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Strætó - jöfnunarstoppistöð á nýjum stað
Málsnúmer 2022120685Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK lagði fram til samþykktar umsögn um nýtt leiðakerfi strætó og flutning á jöfnunarstöð.
Umsögn samþykkt og er vísað áfram til umhverfis og mannvirkjaráðs.