Umhverfis- og mannvirkjaráð - 23
- Kl. 08:15 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 23
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Eiríkur Jónsson
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Steindór Ívar Ívarssonforstöðumaður viðhaldsdeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Óshólmasvæði - beiðni um að flýta fuglatalningu vegna fyrirhugaðrar landfyllingar í Hvammslandi
Málsnúmer 2017110171Tekinn fyrir 3. liður í fundargerð Óshólmanefndar þar sem óskað er eftir að fuglatalningu verði flýtt á svæðinu vegna beiðnar um hækkun lands á Hvammsflæðum.
Þar sem ný gögn í málinu er varða frekari landfyllingar í landi Hvamms og áhrif á vatnsbúskap frestar umhverfis- og mannvirkjaráð ákvörðun um hvort farið verði í fuglatalningar á óshólmasvæðinu um ótiltekin tíma.
Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017
Málsnúmer 2017020033Lögð fram beiðni um umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs á drögum að nýrri stefnu Akureyrarbæjar og ÍBA í íþróttamálum til ársins 2022 dagsett í október 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar því að verið sé að móta skýra stefnu í íþróttamálum hjá Akureyrarbæ. Ráðið leggur áherslu á að gott samráð verði haft við ráðið og sviðið þegar kemur að málefnum íþróttamannvirkja.
Hljóðvistarstyrkir - reglur Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017110268Teknar fyrir að nýju reglur vegna styrkveitinga í glerskipti vegna hljóðvistar við götur.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir endurskoðaðar reglur með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði. Ráðið óskar jafnframt eftir því að fjármagn verði sett í verkefnið á árinu 2018.
Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings
Málsnúmer 2015030205Lögð fram stöðuskýrsla 2 um framkvæmdina dagsett 24. nóvember 2017.
Listasafn - endurbætur
Málsnúmer 2014010168Lögð fram stöðuskýrsla 1 vegna framkvæmdanna dagsett 30. nóvember 2017.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Lögð fram stöðuskýrsla 3 vegna framkvæmdanna dagsett 30. nóvember 2017.
Kristján Snorrason byggingastjóri á umhverfis- og mannvirkjasviði sat fundinn undir þessum lið.Leiguíbúðir - bygging lítilla íbúða
Málsnúmer 2017010357Lögð fram greinargerð 2 dagsett 30. nóvember 2017 vegna málsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða tillögu.
Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið
Málsnúmer 2017050203Lagt fram til kynningar frumvarp að fjárfestingaráætlun fyrir árið 2018 fyrir seinni umræðu í bæjarráði.
Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið
Málsnúmer 2017050203Lagðar fram starfsáætlanir fyrir árið 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2018 með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.
Naustahverfi 7. áfangi - Hagar
Málsnúmer 2017080054Lögð fram stöðuskýrsla 2 vegna framkvæmdanna dagsett 1. desember 2017.
Verkfundargerðir 2017
Málsnúmer 2017010343Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Drottningarbrautarstígur 5. áfangi: 5. verkfundur dagsettur 8. nóvember 2017.
Listasafn: 11. verkfundur dagsettur 16. nóvember 2017.
Nökkvi: 19. fundur verkefnisliðs dagsettur 16. nóvember 2017.
Sundlaug Akureyrar rennibrautir og pottar: 18. verkfundur dagsettur 29. nóvember 2017.
Sundlaug Akureyrar: 21.- 24. fundur verkefnisliðs dagsettir 21. og 23. ágúst, 25. september og 13. nóvember 2017.