Atvinnumálanefnd - 12
18.11.2015
Hlusta
- Kl. 16:00 - 18:10
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 12
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonformaður
- Jóhann Jónsson
- Erla Björg Guðmundsdóttir
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Þórhallur Jónsson
- Stefán Guðnasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Albertína Friðbjörg Elíasdóttirverkefnastjóri atvinnumála ritaði fundargerð
Þórhallur Jónsson D-lista mætti í forföllum Elíasar Gunnars Þorbjörnssonar. [line]Stefán Guðnason Æ-lista mætti í forföllum Margrétar Kristínar Helgadóttur. [line]
Heimsóknir atvinnumálanefndar
Málsnúmer 2015030265Á fundinum voru þrjú fyrirtæki á Akureyri heimsótt sem eiga það sameiginlegt að framleiða orku og verðmæti úr úrgangi.
Guðmundur Haukur Sigurðarson framkvæmdastjóri Vistorku skipulagði heimsóknirnar og leiddi ferðina.
Byrjað var á heimsókn til Moltu þar sem lífrænum úrgangi Akureyringa er breytt í moltu, þaðan var haldið í Orkey þar sem steikingarolía og önnur fita er notuð til að búa til lífdísel. Þá var farið í heimsókn til GPO sem vinnur að því að taka úrgangsplast og breyta í olíu. Að lokum sagði Guðmundur Haukur frá metanframleiðslu Norðurorku.Atvinnumálanefnd þakkar fyrir góðar móttökur hjá forsvarsmönnum Moltu, Orkey og GPO. Nefndin þakkar Guðmundi Hauki sömuleiðis fyrir skipulagningu heimsóknanna.