Stjórn Akureyrarstofu - 290
- Kl. 14:00 - 15:30
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 290
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Sigurhæðir
Málsnúmer 2019090404Deildarstjóri Akureyrarstofu kynnti umsóknir sem bárust um leigu á Sigurhæðum.
Stjórn Akureyrarstofu felur deildarstjóra Akureyrarstofu að vinna úr umsóknum og leggja fram tillögu á næsta fundi.
Listasafnið á Akureyri - samningur um rekstur kaffihúss
Málsnúmer 2018010273Samningur um rekstur kaffihúss í Listasafninu lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.
Skáldahúsin - þjónustusamningur
Málsnúmer 2019100365Þjónustusamningur við Minjasafnið vegna Skáldahúsanna lagður fram til samþykktar. Lagt er til að gerður verði samningur til eins árs.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.
Fylgiskjöl
17. júní hátíðahöld
Málsnúmer 2015020072Samningur við Skátafélagið Klakk vegna 17. júní hátíðahaldanna lagður fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn.
Fylgiskjöl
Menningarhúsið Hof - 10 ára afmæli 2020
Málsnúmer 2019110062Deildarstjóri Akureyrarstofu kynnti hugmynd að skipan afmælisnefndar vegna 10 ára afmælis Hofs á árinu 2020.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Þórgný Dýrfjörð og Finn Dúa Sigurðsson sem fulltrúa í afmælisnefnd.
Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál - endurnýjun 2021
Málsnúmer 2019120027Samstarfssamningur ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál rennur út í lok árs 2020. Hefja þarf samningaviðræður í upphafi árs 2020 og því mikilvægt að stjórn Akureyrarstofu setji sér samningsmarkmið.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum Akureyrarstofu að undirbúa og koma á fundi með hagsmunaaðilum um miðjan janúar þar sem farið verði í að skilgreina sameiginleg markmið.
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Fylgiskjöl
Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun 2020
Málsnúmer 2019120006Fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir vorönn 2020 lögð fram til samþykktar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlagða fundaáætlun.
Fylgiskjöl