Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 927
- Kl. 13:15 - 14:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 927
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Eyrún Halla Eyjólfsdóttirfundarritari
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
Þórunnarstræti 114 - umsókn um byggingarleyfi - fjölgun í fjórar íbúðir
Málsnúmer 2022042298Erindi dagsett 2. ágúst 2023 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Libertas ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 114 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Hulduholt 14-16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023061778Erindi dagsett 30. júní 2023 þar sem Yngvi Ragnar Kristjánsson fyrir hönd Kötlu ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi á lóð nr. 14-16 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Yngva Ragnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Höfðahlíð 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023071273Erindi dagsett 20. júlí 2023 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjórum íbúðum á lóð nr. 2 við Höfðahlíð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.