Samfélags- og mannréttindaráð - 112
- Kl. 17:00 - 19:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 112
Nefndarmenn
- Hlín Bolladóttirformaður
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Regína Helgadóttir
- María Hólmfríður Marinósdóttiráheyrnarfulltrúi
- Friðbjörg J Sigurjónsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðrún Þórsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Katrín Björg Ríkarðsdóttirfundarritari
Íþrótta- og tómstundaskóli
Málsnúmer 2012020136Sólveig Jónasdóttir verkefnastjóri hjá skóladeild mætti á fundinn og sagði frá starfi vinnuhóps um frístundaskóla. Alfa Aradóttir forstöðumaður æskulýðsmála sat fundinn undir þessum lið.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Sólveigu fyrir upplýsingarnar. Ráðinu líst vel á fyrstu tillögur.

Ungmennaráð - starfsemi 2010-2012
Málsnúmer 2011030133Lögð fram til kynningar skýrslan Ungt fólk og lýðræði - ungmennaráðstefna á Hvolsvelli 29.-31. mars 2012. Fulltrúi frá Ungmennaráði Akureyrarbæjar tók þátt í fundinum.

Móttöku- og kynningardagur fyrir nýja íbúa
Málsnúmer 2012060209Áframhaldandi vinna við undirbúning móttöku- og kynningardags fyrir nýja íbúa bæjarins sem haldinn verður í Rósenborg laugardaginn 15. september nk.

Fjárhagsáætlun 2012 - samfélags- og mannréttindadeild
Málsnúmer 2011090010Lagt fram til kynningar yfirlit um fjárhagsstöðu þeirra málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð fyrir fyrstu 6 mánuði ársins.

Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - staðalímyndir
Málsnúmer 2011100052Á fundi sínum 1. ágúst sl. samþykkti samfélags- og mannréttindaráð að stefna að því að ráða verkefnastjóra í tímabundið hlutastarf til að hafa umsjón með vinnu við afnám staðalímynda. Framkvæmdastjóri kynnti nánari útfærslu verkefnisins sem unnin hefur verið í samvinnu við skóladeild og Jafnréttisstofu.

Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - kynjahlutfall
Málsnúmer 2011100052Rætt um Afmælisrit Akureyrarbæjar Þekktu bæinn þinn sem gefið var út af Völuspá útgáfu í tilefni 150 ára afmælis Akureyrarbæjar. Afmælisnefnd Akureyrarbæjar veitti styrk vegna myndakaupa en kom að öðru leyti ekki að útgáfunni.

Samfélags- og mannréttindaráð lýsir vonbrigðum með að eingöngu karlar komi að ritun bókarinnar og minnir á að reynsla og gildismat beggja kynja eru mikilvæg í lýðræðissamfélagi.