Kjarasamninganefnd - 2
- Kl. 11:30 - 12:07
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Kjarasamningar við aðildarfélög BHM og önnur háskólafélög
Málsnúmer 2016040008Kynnt staða vinnu Akureyrarbæjar og annarra sveitarfélaga við starfsmat sem á samkvæmt kjarasamningum aðildarfélaga BHM og nokkurra annara háskólafélaga að koma til framkvæmda 1. júní 2018.
Fylgiskjöl
Endurskoðun á samkomulagi vegna starfsmanna í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu hjá Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi
Málsnúmer 2018020574Lögð fram tillaga að breytingum á samkomulagi dagsett 31. október 2006 milli Einingar-Iðju og Akureyrarbæjar vegna starfsmanna í starfsþjálfun/starfsendurhæfingu og á ótímabundun ráðningarsamningi hjá Plastiðjunni- Bjargi Iðjulundi.
Kjarasamninganefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til við bæjarráð að hún verði samþykkt með gildistíma frá 1. janúar 2018
Launastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2018020573Lögð fram tillaga að mótun heildstæðrar launastefnu Akureyrarbæjar sem hluta af aðgerðum vegna fyrirhugaðrar Jafnlaunavottunar hjá sveitarfélaginu.
Kjarasamninganefnd samþykkir að fela sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að hefja vinnu við mótun launastefnu Akureyrarbæjar.
Launaþróunartrygging samkvæmt samkomulagi aðila vnnumarkaðarins
Málsnúmer 2018030034Kynnt yfirlýsing undirrituð 1. mars 2018 um útfærslu launatryggingar fyrir tímabiið 2013-2017 samkvæmt rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins.
Fylgiskjöl