Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 451
- Kl. 13:15 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 451
Nefndarmenn
- Pétur Bolli Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Hafnarstræti-stöðuleyfi
Málsnúmer 2013070022Erindi dagsett 4. júlí 2013 þar sem Eyþór Jónsson f.h. Ís og kaffis ehf., kt. 580313-1240, sækir um stöðuleyfi fyrir ísvagn við Ráðhústorg. Meðfylgjandi er mynd af ísvagninum.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem búið er að veita leyfi fyrir þeim söluvögnum sem hægt er að koma fyrir í miðbænum.

Hafnarstræti-stöðuleyfi
Málsnúmer 2013070034Erindi dagsett 9. júlí 2013 þar sem Gísli Sverrisson sækir um stöðuleyfi fyrir pylsuvagn nálægt miðbæ Akureyrar. Meðfylgjandi er mynd af leyfisbréfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.

Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem búið er að veita leyfi fyrir þeim söluvögnum sem hægt er að koma fyrir í miðbænum.

Brálundur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013070011Erindi dagsett 2. júlí 2013 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Hebu Finnsdóttur sækir um breytingar á útliti og innra skipulagi hússins nr. 1 við Brálund. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Kjarnagata 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013060263Erindi dagsett 27. júní 2013 þar sem Aðalsteinn Snorrason f.h. Fiskkompanísins ehf., kt. 520613-0800, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 2 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru gátlisti og fylgiskjal. Innkomnar umsagnir Vinnueftirlitsins og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra 2. júlí 2013.\nInnkomnar lagfærðar teikningar eftir Aðalstein Snorrason 9. júlí 2013.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Sómatún 29 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2012120025Erindi dagsett 9. júlí 2013 þar sem Logi Már Einarsson f.h. Sverris Gestssonar sækir um breytingu á staðsetningu hússins Sómatúns 29 á lóðinni. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar eftir Loga Má Einarsson.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Tryggvabraut 16 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013020084Erindi dagsett 8. febrúar 2013 þar sem Helgi Örlygsson f.h. Nýju Kaffibrennslunnar ehf., kt. 440700-2760, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í Tryggvabraut 16. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Gunnlaug Ó. Johnson.\nInnkomnar leiðréttar teikningar 8. júlí 2013.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

Tryggvabraut 22 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013070002Erindi dagsett 1. júlí 2013 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. DK fasteigna ehf., kt. 540411-0690, sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 22 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru samþykki meðeigenda, tilkynning um hönnunarstjóra og teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson mótteknar 5. júlí 2013.\nJafnframt er sótt um frest í 3-5 ár til að setja lyftu í húsið.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði og óskar eftir afstöðu Samstarfsnefndar um ferlimál fatlaðra til ferlimála heilsuræktarinnar og til beiðni um frestun á uppsetningu lyftu.

Hrafnabjörg 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer BN090245Erindi þar sem Viggó Benediktsson f.h. Höfðahúss ehf., kt. 551105-0750, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hafsteinsson innkomnar 10. júlí 2013.

Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.