Bæjarráð - 3361
- Kl. 09:00 - 11:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3361
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Geir Kristinn Aðalsteinsson
- Oddur Helgi Halldórsson
- Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonáheyrnarfulltrúi
- Ólafur Jónssonáheyrnarfulltrúi
- Ragnar Sverrissonáheyrnarfulltrúi
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dan Jens Brynjarssonfjármálastjóri
- Jón Bragi Gunnarssonhagsýslustjóri
- Heiða Karlsdóttirfundarritari
Miðbær Akureyrar
Málsnúmer 2012110172Logi Már Einarsson arkitekt hjá Kollgátu ehf mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu á vinnu við miðbæjarskipulag.

Fóðurverksmiðjan Laxá hf - aðalfundur 2013
Málsnúmer 2013040025Erindi móttekið 4. apríl 2013 frá rekstrarstjóra Fóðurverksmiðjunnar Laxár hf þar sem boðað er til aðalfundar þann 18. apríl nk. í Stássinu/Greifanum og hefst hann kl. 13:30.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.
Tækifæri hf - aðalfundur 2013
Málsnúmer 2013040054Erindi dags. 4. apríl 2013 frá Jóni Steindóri Árnasyni framkvæmdastjóra Tækifæris hf þar sem hann fyrir hönd Tækifæris hf boðar til aðalfundar föstudaginn 19. apríl nk. sem haldinn verður á 3ju hæð að Strandgötu 3, Akureyri og hefst kl. 14:00.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.
Hverfisnefnd Oddeyrar - fundargerðir 2013
Málsnúmer 2013040029Lögð fram fundargerð 47. fundar hverfisnefndar Oddeyrar dags. 21. mars 2013.\nhttp://www.akureyri.is/static/files/47_fundur.pdf

1., 2. og 3. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði, 4. lið er vísað til skipulagsdeildar og 5. lið til framkvæmdadeildar.

Legó-lið Naustaskóla - styrkbeiðni
Málsnúmer 2013020274Erindi dags. 22. mars 2013 frá Magnúsi Jóni Magnússyni þjálfara Lego-liðs Naustaskóla þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku Legó-liðs Naustaskóla í Evrópumótinu First Lego sem haldið verður í Paderborn í Þýskalandi 7.- 9. maí 2013.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 sem greiðist af styrkveitingum bæjarráðs.

Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2012
Málsnúmer 201211018010. liður í fundargerð bæjarstjórnar dags. 9. apríl 2013:\nFram kom tillaga um að vísa ársreikningnum til bæjarráðs og síðari umræðu í bæjarstjórn og var hún samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Ársreikningurinn verður tekinn aftur fyrir á næsta fundi bæjarráðs.