Félagsmálaráð - 1135
- Kl. 14:00 -
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1135
Nefndarmenn
- Inda Björk Gunnarsdóttirformaður
- Dagur Fannar Dagsson
- Jóhann Ásmundsson
- Oktavía Jóhannesdóttir
- Margrét Guðjónsdóttirfundarritari
Áfrýjun vegna húsaleigubóta
Málsnúmer 2011110038Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið og kynntu áfrýjun vegna húsaleigubóta.\nDagur Dagsson L-lista sat ekki fundinn undir þessum lið.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.
Öldrunarheimili Akureyrar - kynning á gæðavísum í RAI-mati
Málsnúmer 2011100123Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynntu niðurstöður úr gæðamælingum í RAI-mati. Þar er að sjá margskonar vísbendingar um gæði þjónustu og aðbúnað íbúa en ýmsar athugasemdir voru gerðar um aðferðarfræðina.

Öldrunarheimili Akureyrar - fræðsluáætlun 2011-2012
Málsnúmer 2011100121Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri og Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA kynntu fræðsluáætlun 2011-2012 fyrir öldrunarheimilin. ÖA hefur verið í samstarfi við SÍMEY um þarfagreingarverkefnið Markviss. Næstu tvö árin verður unnið eftir fræðsluáætlun sem miðar að því að efla starfsmenn enn frekar í starfi.\nDagur Dagsson L-lista sat ekki fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju með vel gerða og metnaðarfulla fræðsluáætlun.

Öldrunarheimili Akureyrar - Virkur vinnustaður 2011-2014
Málsnúmer 2011100122Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri og Helga Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynntu verkefnið Öldrunarheimili Akureyrar - Virkur vinnustaður 2011-2014 en það er unnið í samvinnu við Virk starfsendurhæfingu.\nDagur Dagsson L-lista sat ekki fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið.

Réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi
Málsnúmer 2011110111Guðrún Pálmadóttir réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Norðurlandi kynnti starf sitt.\nBrit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið.

Félagsmálaráð þakkar góða kynningu.

Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012
Málsnúmer 2009090008Ræddar voru hugmyndir um þátttöku deilda og stofnana á vegum félagsmálaráðs í afmælisári Akureyrarbæjar 2012.\nBrit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sátu fundinn undir þessum lið.

Hugmyndir um verkefni sendar afmælisnefnd til skoðunar.

Félagsmálaráð - rekstraryfirlit 2011
Málsnúmer 2011040030Brit Bieltvedt framkvæmdastjóri ÖA, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri HAK og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynntu rekstraryfirlit sinna deilda fyrir fyrstu 10 mánuði ársins.