Velferðarráð - 1233
- Kl. 14:00 - 18:15
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1233
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttirformaður
- Halldóra Kristín Hauksdóttir
- Svava Þórhildur Hjaltalín
- Valur Sæmundsson
- Guðrún Karitas Garðarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karólína Gunnarsdóttir
- Halldór Sigurður Guðmundssonframkvæmdastjóri
- Anna Bryndís Sigurðardóttirfundarritari
Húsaleigubætur
Málsnúmer 2016050279Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi mættu á fund ráðsins og gerðu grein fyrir áhrifum nýlegra breytinga á reglur um sérstakar húsaleigubætur.
Velferðarráð leggur til að reglurnar verði óbreyttar en að skerðingarhlutfall vegna tekna verði 0,67% í stað 1,35% og vísar málinu í bæjarráð til lokaafgreiðslu.
Sérstakar húsaleigubætur - úrskurðarnefnd velferðarmála
Málsnúmer 2015120130Lagður var fram til kynningar nýlegur úrskurður frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð felur starfsmönnum húsnæðisdeildar að taka málið til nýrrar meðferðar sbr. úrskurðarorð úrskurðarnefndar velferðarmála.
Fjárhagserindi 2016 - áfrýjanir
Málsnúmer 2016010011Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Velferðarráð staðfestir ákvörðun félagsþjónustu um fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra var færð í trúnaðarbók velferðarráðs.
Notendaráð í málaflokki fatlaðra
Málsnúmer 2016050124Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar lagði fram að nýju drög að samþykkt fyrir notendaráð í málaflokki fatlaðra.
Velferðarráð samþykkti drögin og felur starfsmönnum að undirbúa framkvæmdina og málinu vísað í bæjarstjórn til staðfestingar.
Búsetudeild - einstaklingsmál 2016
Málsnúmer 2016020007Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynnti stöðu einstaklingsmáls í fjarveru Laufeyjar Þórðardóttur verkefnastjóra búsetudeildar. Málið var áður á dagskrá velferðarráðs þann 2. febrúar 2016 og 28. apríl 2016.
Málið lagt fram til kynningar.
Búsetudeild - sumardvalir fatlaðs fólks
Málsnúmer 2016060025Sigríður Huld Jónsdóttir kynnti leiðbeinandi reglur vegna orlofsdvala fatlaðra en félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði starfshóp 8. febrúar sl. til að fara yfir orlofsmál fatlaðs fólks. Verkefni hópsins var m.a. að kanna möguleika á að setja sérstakar reglur um þá þjónustu sem þessi hópur fær í dag. Ráðherra samþykkti leiðbeiningar vegna sumardvalar fatlaðs fólks sem fylgdu með sem fylgiskjal á fundinum ásamt viðbrögðum ýmissa hlutaðeigendi.
Velferðarráð fór yfir leiðbeinandi reglur frá velferðarráðuneytinu um sumardvalir fyrir fatlað fólk. Ráðið fór einnig yfir athugasemdir sem komu frá þjónusturáði málefna fatlaðs fólks á Suðurlandi og tekur undir þær athugasemdir sem þar koma fram. Starfsmönnum í félagsþjónustu var falið að senda sambærilegar athugasemdir til ráðuneytis.
Bréf frá aðstandendum íbúa í Jörvabyggð 14
Málsnúmer 2016050152Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið í fjarveru Laufeyjar Þórðardóttur verkefnastjóra búsetudeildar.
Lagt var fram til kynningar bréf dagsett 11. maí 2016 frá aðstandendum íbúa á sambýli á Akureyri.Starfsmönnum búsetudeildar er falið að svara bréfinu í samræmi við umræður á fundinum.
Framkvæmdastjóri búsetudeildar - ráðning
Málsnúmer 2016030002Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mætti á fundinn og ræddi ráðningu í starf framkvæmdastjóra búsetudeildar.
Velferðarráð tók fyrir umsóknir um starf framkvæmdastjóra búsetudeildar.
Sigríður Huld Jónsdóttir formaður velferðarráðs og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri kynntu niðurstöður úr viðtölum við umsækjendur.Velferðarráð samþykkir samhljóða að mæla með því að Jón Hrói Finnsson verði ráðinn í starf framkvæmdastjóra búsetudeildar.
Velferðarráð þakkar öðrum umsækjendum fyrir áhugann á starfi hjá Akureyrarbæ.
Velferðarstefna 2014-2018
Málsnúmer 2015010191Anna Lilja Björnsdóttir verkefnisstjóri mætti á fund ráðsins og kynnti vinnu við gerð velferðarstefnu.
Breytt notkun á tveimur raðhúsaíbúðum
Málsnúmer 2016020246Framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, Halldór Guðmundsson greindi frá undirbúningi og kynnti drög að rammasamkomulagi um breytingar á íbúðunum og hugmyndir að rekstrarfyrirkomulagi.
Halldóri Guðmundssyni framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar var falið að vinna áfram að samningagerðinni.
CONNECT - verkefnið
Málsnúmer 2014060231Málinu var frestað á fundi ráðsins 6. apríl sl.
Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar (ÖA) kynnti tilrauna- og rannsóknarverkefni um hjólaverkefni til aukinnar hreyfingar. Verkefnið er unnið í samvinnu við norskt fyrirtæki, Mototech, og var í umsjón Ástu Þorsteinsdóttur sjúkraþjálfara. Í lok verkefnis fór fram mat á framvindu og mögulegu framhaldi á notkun þessa búnaðar innan ÖA. Lögð var fram samantekt um verkefnið og greindi framkvæmdastjóri frá kostnaði við tækjakaup til að hægt sé að nýta þessa tækni til að styrkja hreyfigetu og lífsgæði íbúa.
Á opnum dögum/Gleðidögum ÖA sem voru 9.- 10. júní sl. var búnaðurinn kynntur sérstaklega og haldin kaffisala til fjáröflunar þessa verkefnis.Velferðarráð þakkar kynninguna.
Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna
Málsnúmer 2013120021Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar gerði grein fyrir samráðsfundi sem haldinn var 23. maí 2016 með fulltrúum Sjúkrahússins á Akureyri samkvæmt samningi um þjónustu öldrunarlækna. Fyrir liggur að núverandi samningur verði framlengdur.
Málefni í vinnslu og gögn frá SFV
Málsnúmer 2015040217Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar greindi frá þátttöku sinni á félagsfundi Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) sem haldinn var 3. júní sl. Til fundarins var boðað til að ræða stöðu og framvindu viðræðna við Sjúkratryggingar Íslands um þjónustusamning og daggjaldagreiðslur.
Áform eru um að ljúka viðræðum í lok júní og hafa fjármunir sem greiða á hjúkrunarheimilum verið tengdir við það að hægt verði að ljúka samningum. Félagsfundur SFV samþykkti að greiðslur færu fram hið fyrsta og án tillits til hvort samningur náist innan greindra tímamarka. Á fundi SFV var einnig fjallað um viðbrögð og samstöðu meðal rekstraraðila hjúkrunarheimila ef svo fari að samningar dragist enn frekar.Velferðarráð þakkar kynninguna og tekur undir áherslur SFV um alvarleika þess ef samningaviðræður dragast enn frekar.
Málaflokkur fatlaðra í Eyjafirði - ársskýrslur
Málsnúmer 2012030171Ársskýrsla í málaflokki fatlaðra í Eyjafirði fyrir árið 2015 var lögð fram til kynningar.
Fjölskyldudeild - ársskýrsla 2015
Málsnúmer 2015060133Lögð var fram til kynningar ársskýrsla fjölskyldudeildar fyrir árið 2015.
Fundaáætlun velferðarráðs
Málsnúmer 2015060008Fundaáætlun fyrir síðari hluta ársins 2016 var lögð fram.
Samþykktir og gögn vegna umsóknar um endurgreiðslu vsk
Málsnúmer 2015120211Halldór Guðmundsson framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrarbæjar (ÖA) og Lúðvík Freyr Sæmundsson rekstrarstjóri kynntu athuganir sínar og tillögu að breytingum á samþykktum Gjafasjóðs ÖA í kjölfar athugasemda frá Tollstjóra vegna umsóknar um endurgreiðslu á virðisauka.
Málið tekið af dagskrá og frestað.