Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 558
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 558
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill skipulagsstjóra
- Björn Jóhannsson
Krossanes 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir skyggni
Málsnúmer 2015100007Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Björgvin Smári Jónsson f.h. Becromal Iceland, kt. 590207-0120, sækir um byggingarleyfi fyrir skyggni yfir inngang á húsi nr. 4 við Krossanes. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Hrafnaland 6 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014090295Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 6 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Hrafnaland 10 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2014110096Erindi dagsett 2. október 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um leyfi fyrir kamínu í húsi nr. 10 við Hrafnaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Þórunnarstræti 132 - umsókn leyfi fyrir breytingum á gluggum
Málsnúmer 2015090195Erindi dagsett 23. september 2015 þar sem Rögnvaldur Harðarson f.h. Eigenda Þórunnarstrætis 132, þar á meðal Áslaugar Felixdóttur sækir um leyfi fyrir breytingum á gluggum á húsi nr. 132 við Þórunnarstræti. Meðfylgjandi er teikning eftir Rögnvald Harðarson. Innkomin teikning 8. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Míla - framkvæmdaleyfi fyrir ljósveitu 2015
Málsnúmer 2015030238Erindi dagsett 8. október 2015 frá Ingimari Ólafssyni þar sem hann f.h. Mílu ehf., kt. 460207-1690, óskar eftir útgáfu framkvæmdaleyfis sbr. bókun skipulagsnefndar 15. apríl 2015.
Um er að ræða framkvæmdir samkvæmt meðfylgjandi teikningu við:
1. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5, svæði 1-7, Norður Brekka:
Þingvallastræti-Byggðavegur-Hamarstígur-Þórunnarstræti-Bjarkarstígur-Helgamagrastræti-Munkaþverárstræti-Krabbastígur-Brekkugata, ídráttur, tengiholur, tengiskápaskipti og nýr brunnur. Lögberggata-Oddeyrargata-Oddagata, lagnaskurður, tengiholur, ídráttur og nýr tengiskápur.
2. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5, svæði 8: Borgarbraut-Klettaborg, ídráttur og tengiskápsskipti.
3. AKUR - Ljósveitan 2015, áfangi 5: Möðruvallastræti, tengiholur.
Meðfylgjandi er staðfesting á samráði við framkvæmdadeild og Norðurorku.Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir ofantalin verk. Framkvæmdir skulu gerðar í samræmi við verklagsreglur Akureyrarbæjar um yfirborðsfrágang í bæjarlandinu. Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur. Framkvæmdaleyfið gildir í eitt ár frá útgáfu leyfis og gildir einungis fyrir svæði utan íbúðarhúsalóða og annarra úthlutaðra lóða.
Duggufjara 2 - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu
Málsnúmer 2015070004Erindi dagsett 1. júlí 2015 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Leifs Kristjáns Þormóðssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 2 við Duggufjöru. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson. Innkomnar teikningar 9. október 2015.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Kjarnalundur lnr. 150012 - byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss
Málsnúmer 2014120088Erindi dagsett 24. september 2015 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Kjarnalundar ehf., kt. 541114-0330, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Kjarnalundi, landnr. 150012. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Spítalavegur 1 - umsókn um breytingar innanhúss
Málsnúmer 2015090264Erindi dagsett 28. september 2015 þar sem Jón Kristján Ólason sækir um breytingar innanhúss í húsi nr. 1 við Spítalaveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Klettaborg 4 - byggingarleyfi fyrir glugga
Málsnúmer 2015090282Erindi dagsett 29. september 2015 þar sem Helgi Snorrason sækir um bæta við glugga á norðurhlið jarðhæðar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Kjarnagata 31 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2013030066Erindi dagsett 30. september 2015 þar sem Haraldur Árnason f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 31 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir erindið.
Brekatún 2 - umsókn fjölgun á séreignageymslum
Málsnúmer 2015090091Erindi dagsett 16. september 2015 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um að fjölga séreignageymslum í húsi nr. 2 við Brekatún. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill skipulagsstjóra frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.