Fræðslunefnd - 1
- Kl. 15:00 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 1
Nefndarmenn
- Inga Þöll Þórgnýsdóttirformaður
- Dagný Magnea Harðardóttir
- Karólína Gunnarsdóttir
- Tómas Björn Hauksson
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirstarfsmannastjóri
- Ingunn Helga Bjarnadóttirfundarritari
Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - staða sjóðsins
Málsnúmer 2012090152Námsstyrkjasjóður sérmenntaðra starfsmanna - umræða um stöðu sjóðsins.
Fræðslunefnd ályktar um stöðu Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna.
Um áramótin 2008-2009 var ákveðið að gera tímabundið hlé á fjárveitingu í Námsstyrkjasjóð sérmenntaðra starfsmanna. Fræðslunefnd hefur árlega frá árinu 2010 óskað eftir að fjármagni verði veitt í sjóðinn.
Í Samþykkt um styrki til námsleyfa sérmenntaðra starfsmanna Akureyrarbæjar segir í 1. gr.: Bæjarstjórn Akureyrar vill með samþykkt þessari stuðla að því að efla menntun og þekkingu sérmenntaðra starfsmanna sinna.
Fræðslunefnd ítrekar erindi sitt og skorar á bæjarráð að veita að nýju fjármagni til Námsstyrkjasjóðs sérmenntaðra starfsmanna í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.Námsstyrkjasjóður embættismanna - staða haust 2015
Málsnúmer 2014090039Farið yfir stöðu Námsstyrkjasjóðs embættismanna haustið 2015.
Námsstyrkjasjóður embættismanna - auglýsing haust 2015
Málsnúmer 2014090038Umræða um hvort og þá hvenær eigi að auglýsa eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna haustið 2015.
Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa næst eftir umsóknum í Námsstyrkjasjóð embættismanna í október 2015 fyrir námsárið 2016-2017.
Stjórnenda- og starfsmannafræðsla
Málsnúmer 2013020005Verkefnastjóri starfsþróunar kynnti stjórnenda- og starfsmannafræðslu haustsins.