Kjarasamninganefnd - 7
03.07.2017
Hlusta
- Kl. 15:00 - 15:45
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 7
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Gunnar Gíslason
Starfsmenn
- Halla Margrét Tryggvadóttirsviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Tímabundið tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti
Málsnúmer 2015090067Tekið fyrir erindi frá leikskólanum Pálmholti um framhald tilraunaverkefnis sem hófst haustið 2015.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að heimild verði veitt til að framlengja tilraunaverkefni á leikskólanum Pálmholti til vors 2018. Kjarasamninganefnd óskar eftir að fá í júní 2018 skýrslu sem byggir m.a. á könnun meðal starfsmanna, um reynslu af verkefninu.
Starfsþróunarsetur háskólamanna
Málsnúmer 2017070001Kynnt tillaga um að sótt verði um aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna fyrir tilgreindan hóp starfsmanna hjá Akureyrarbæ.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að sótt verði um aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna fyrir æðstu stjórnendur bæjarins sem tilgreindir eru í minnisblaði.